Jón Gnarr: „Krúa Thai jafnmikill hluti af þjóðmenningu okkar og Múlakaffi“

Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, segir það mikinn misskilning að íslensk þjóðmenning hafi orðið til í einangrun og án áhrifa frá öðrum þjóðum. Þvert á móti hafi erlend áhrif mótað íslenskt samfélag frá upphafi og Íslendingar eigi að taka fjölbreytileikanum fagnandi.

Þetta kemur fram í grein sem Jón skrifar í Morgunblaðið í dag undir yfirskriftinni Áfram allskonar!

Jón segir að margir virðist líta svo á að íslensk menning, hefðir og gildi hafi þróast án utanaðkomandi áhrifa.

„Það er mjög fjarri lagi,“ segir hann og bendir á að landnámsmenn hafi flutt með sér menningu sína og að Ísland hafi verið í mun meiri tengslum við umheiminn en oft hafi verið talið.

Hann rifjar upp hvernig erlendir sjómenn, kaupmenn og innflytjendur hafi í gegnum aldirnar sett mark sitt á íslenskt samfélag. Þar nefnir hann meðal annars Þjóðverja, Breta, Frakka og Baska, auk gyðinga sem flúðu ofsóknir nasista og áttu þátt í að efla íslenskt tónlistarlíf.

Bandarísk áhrif hafi sömuleiðis verið mikil, ekki síst eftir komu bandaríska hersins og síðar með tilkomu sjónvarpsins.

Jón segir að í hans huga ráðist það ekki eingöngu af uppruna eða ættartengslum hverjir teljist Íslendingar.

„Fyrir mér eru Íslendingar fyrst og fremst allt það fólk sem kýs að eiga sér líf sitt hér.“

Jón nefnir ýmis dæmi úr matarmenningu og dægurmenningu til að varpa ljósi á hvernig erlend áhrif hafi að hans mati orðið hluti af íslenskri þjóðmenningu.

„Sviðakjamminn kom hingað frá Norður-Afríku. Mér finnst Krúa Thai jafnmikill hluti af þjóðmenningu okkar og Múlakaffi. Góði dátinn Sveik var Íslendingur. Charles Ingals líka. Seríós í súrmjólk er jafn íslenskur matur og hinn breski blóðmör.“

Jón segir mikilvægt að Íslendingar séu opnir fyrir fólki sem vilji setjast hér að og leggja sitt af mörkum til samfélagsins.

„Við erum allskonar. Við eigum að umfaðma allt og alla þá sem koma að gagni og vilja auðga menningu okkar með tilvist sinni.“

Hann slær þó ákveðinn varnagla í lok greinar sinnar.

„En við þurfum líka að vera á varðvergi gagnvart þeim sem vilja notfæra sér okkur. Við erum allskonar en mestu máli skiptir að við séum öll að tala sama tungumál.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅