Liverpool ætlar ekki að selja þrátt fyrir áhuga

Liverpool ætlar ekki að selja Jeremie Frimpong í janúar þrátt fyrir að Hollendingurinn hafi verið orðaður við félög í Sádi-Arabíu.

Samkvæmt Teamtalk hefur Liverpool ákveðið að halda Frimpong út tímabilið en hann hefur átt erfitt uppdráttar síðan hann kom frá Bayer Leverkusen sumarið 2025. Meiðsli hafa einnig sett strik í reikninginn.

Frimpong, sem er 25 ára, hefur fallið aftar í goggunarröðina eftir að Andoni Iraola tók við sem stjóri. Ronald Araujo, sem er á láni frá Barcelona, hefur verið notaður í hægri bakverði í hans stað.

Liverpool vill halda Frimpong til að hafa næga breidd í hópnum en sala næsta sumar kemur til greina. Hann er samningsbundinn til 2030.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅