Þeir sem stefna hærra gætu endað með einkunnina 4

Ingibjörg óttast að nemendum verði skipt upp í tvo hópa.

Ingibjörg óttast að nemendum verði skipt upp í tvo hópa. mbl.is/Karítas

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að verið sé að skipta nemendum í 10. bekk upp í tvo hópa með innleiðingu á nýjum námsmatskvarða í grunnskólum.

Annars vegar hóp nemenda sem hefur metnað til að fá einkunnir frá 8 og upp í 10 og velja þá þyngra og umfangsmeira námsefni, og svo þá sem velja einfaldara námsefni og geta þá hæst fengið einkunnina 7. Nái hins vegar nemendur ekki tilætluðum árangri eiga þeir á hættu að fá einkunnina 4.

Þetta kom fram í fyrirspurn Ingibjargar til ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag, þar sem hún lýsti yfir áhyggjum af innleiðingu nýs námsmats. Spurði hún ráðherra hvort þetta væri rétti skilningurinn hennar á málinu.

Hefur upplýsingar frá kennurum

Ingibjörg sagðist hafa fengið upplýsingar innan úr skólakerfinu, meðal annars frá kennurum, sem bentu til þess að nemendur væru þegar farnir að standa frammi fyrir því að þurfa að velja sér námsefni eftir því hvaða einkunnir þeir vildu eiga möguleika á að fá.

Mennta- og barnamálaráðherra hafnar því að verið sé að skipta nemendum í tvo hópa og segir breytingunum ætlað að koma í veg fyrir mismunun eftir búsetu.

Ingibjörg sagði að samkvæmt þeim upplýsingum sem hún hefði fengið væri nemendum í ákveðnum grunnskólum boðið að velja á milli tveggja leiða.

Sagði hún sérstaklega varhugavert að nemendur sem veldu þyngra námsefnið gætu fengið einkunnina fjóra ef þeir næðu ekki tilætluðum árangri, í stað þess að eiga möguleika á einkunnunum fimm, sex eða sjö.

Inga Sæland og Ingibjörg Isaksen.

Inga Sæland og Ingibjörg Isaksen. Samsett mynd mbl.is/Eggert

Hefur heyrt í glöðum kennurum

Ráðherra sagðist ekki kannast við þá lýsingu að verið væri að skipta börnum í tvo hópa.

Hann benti á að nýlega hefði verið gefin út bráðabirgðareglugerð um námsmat í 10. bekk sem gilda ætti til 1. júlí á næsta ári.

„Nú eru kennararnir okkar komnir með öll þau gögn sem þeir hafa verið að kalla eftir og skýra leiðarvísa um það til hvers er ætlast og hvernig á að gefa einkunnir.“

Ráðherra sagði jafnframt að kennurum stæði til boða stuðningur við innleiðinguna og að hann hefði fengið jákvæð viðbrögð frá mörgum þeirra.

„Ég skil það hæfniviðmið sem nú er í gildandi aðalnámskrá um einkunnina 7 inn í framhaldsskóla. Ég skil það svo að einstaklingur sem hefur ekki náð því hæfniviðmiði muni fara í svokallaðan byrjenda- eða 0 áfanga á meðan aðrir gætu kannski farið í stærðfræði 103 vegna þess að þeir hafi í rauninni bolmagn til þess,“ sagði Inga í svari sínu.

„Ég veit ekki hvort það er það sem háttvirtur þingmaður á við þegar hann er að segja að við séum að skipta börnunum okkar niður eftir getu, að þeir sem eru burðugri til náms fái í rauninni einhverja sérmeðferð á meðan aðrir gera það ekki,“ sagði Inga jafnframt.

„Ég hef líka heyrt í mjög mörgum kennurum sem eru afskaplega glaðir og afskaplega ánægðir og í rauninni búnir að tileinka sér þetta nýja kerfi strax.“

Inga sagðist því binda vonir við að breytingarnar myndu ekki leiða til mismununar heldur þvert á móti auðvelda nemendum lífið.

Spurði af hverju mætti ekki fresta

Ingibjörg sagðist ekki vera að alhæfa um alla grunnskóla landsins en ítrekaði að hún hefði raunveruleg dæmi um að innleiðingin færi fram með þeim hætti sem hún lýsti.

Óásættanlegt væri að kennarar væru settir í þá stöðu að þurfa að flokka nemendur með þessum hætti.

„Ég er ekki að finna þetta upp hér, frú forseti, alls ekki. Þetta er raunverulegt dæmi.“

Ingibjörg spurði jafnframt hvaða rök væru fyrir því að stöðva ekki innleiðinguna tímabundið og vinna málið betur svo allir hefðu sama skilning á breytingunum.

Beindi gagnrýni að Framsókn

Ráðherra svaraði því til að brýnasta verkefnið væri að koma í veg fyrir þá mismunun sem hann segir felast í núverandi einkunnakerfi.

Mikill munur væri á einkunnagjöf milli grunnskóla og nefndi sem dæmi að í einum skóla gætu 56% nemenda fengið einkunnina A en í öðrum skóla enginn.

Slíkur munur hefði áhrif á möguleika nemenda á að komast inn í þá framhaldsskóla sem þeir kysu helst.

„Lágmarkskrafa í mínum huga er að hætta að mismuna börnum sem eru að útskrifast úr tíunda bekk eftir búsetu.“

Ráðherra sagði jafnframt að breytingarnar hefðu fengið jákvæð viðbrögð frá kennurum og foreldrum og að hann hygðist halda innleiðingunni áfram.

„Við ætlum að snúa við þeirri öfugþróun sem er að eiga sér stað og búin að eiga sér stað í menntakerfinu um árabil,“ sagði ráðherra og beindi jafnframt gagnrýni að Framsóknarflokknum vegna stöðu menntamála á undanförnum árum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅