Vilja stríðslok áður en rætt verður um öryggi Evrópu

Særður úkraínskur hermaður reykir sígarettu á vígvellinum.

Særður úkraínskur hermaður reykir sígarettu á vígvellinum. AFP

Þýsk stjórnvöld segja að ná þurfi samkomulagi um að binda enda á stríðið í Úkraínu áður en hafnar verði víðtækari viðræður við Rússa um öryggismál Evrópu.

Þau fögnuðu í dag tillögu um að evrópskir samningamenn tækju þátt í viðræðum Rússa og Úkraínumanna í framtíðinni.

Stefan Kornelius.

Stefan Kornelius. AFP

„Fyrsta skrefið er friður í Úkraínu. Að því loknu geta farið fram viðræður um öryggisfyrirkomulag í Evrópu og beggja vegna Atlantshafsins,“ sagði Stefan Kornelius, talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar, í Berlín.

Hann lét orðin falla eftir að viðræðum Rússa og Úkraínumanna í Abú Dabí lauk. Þær fóru fram með milligöngu Bandaríkjanna.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅