Vilja stríðslok áður en rætt verður um öryggi Evrópu
Þýsk stjórnvöld segja að ná þurfi samkomulagi um að binda enda á stríðið í Úkraínu áður en hafnar verði víðtækari viðræður við Rússa um öryggismál Evrópu.
Þau fögnuðu í dag tillögu um að evrópskir samningamenn tækju þátt í viðræðum Rússa og Úkraínumanna í framtíðinni.
„Fyrsta skrefið er friður í Úkraínu. Að því loknu geta farið fram viðræður um öryggisfyrirkomulag í Evrópu og beggja vegna Atlantshafsins,“ sagði Stefan Kornelius, talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar, í Berlín.
Hann lét orðin falla eftir að viðræðum Rússa og Úkraínumanna í Abú Dabí lauk. Þær fóru fram með milligöngu Bandaríkjanna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
