Fundu barnaníðsefni í þúsundavís við húsleit hjá manni í Reykjavík
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært mann sem búsettur er í miðborg Reykjavíkur fyrir kynferðisbrot, en maðurinn hafði mikið barnaníðsefni undir höndum er lögregla gerði húsleit hjá honum þann 28. mars árið 2023. Fundust þar 7225 ljósmyndir og 33 myndbönd sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt.
Ákærði geymdi myndefnið í tölvuturni og hörðum diskum en tækin voru haldlögð við húsleit lögreglu.
Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og var fyrirtaka síðastliðinn þriðjudag.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗