Kvennaliðið lagt niður niður fyrir norðan
Dalvík/Reynir verður ekki með meistaraflokk kvenna í fótbolta á næsta tímabili. Félagið endurvakti liðið fyrir þremur árum eftir um þriggja áratuga hlé.
Samkvæmt yfirlýsingu félagsins var samstarf við Þór/KA forsenda þess að hægt væri að halda liðinu úti. Ákvörðun KA um að slíta samstarfinu við Þór hafi breytt þeirri stöðu.
Dalvík/Reynir hafnaði í sjöunda sæti 2. deildar á nýliðnu tímabili.
Félagið hefur áhyggjur af því að stúlkur í yngri flokkum eigi nú ekki kost á að taka skrefið upp í meistaraflokk innan þess. Vonir standa þó til að hægt verði að koma liðinu aftur af stað.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/14/1691447.jpg)