Hyggjast herða viðurlög vegna heiðursofbeldis
Nicolai Wammen, dómsmálaráðherra Danmerkur, ræðir við Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. AFP
Danska ríkisstjórnin vill að heiðurstengdur hvati að baki ofbeldisbrotum verði sérstök refsiþyngingarástæða í hegningarlögum.
Verði frumvarp dómsmálaráðherrans, Nicolais Wammens, samþykkt eiga dómstólar að jafnaði að þyngja refsingu ef brot er framið að öllu leyti eða að hluta af slíkum hvötum. Gildistaka er fyrirhuguð 1. janúar 2027. Frumvarpið var lagt fram 7. október og vísað til dómsmálanefndar danska þingsins eftir fyrstu umræðu 3. nóvember.
Breytingin gæti átt við um ólík brot, svo sem hótanir, nauðung og líkamsárásir. Heiður þarf aðeins að vera ein af ástæðum verknaðarins. Í greinargerðinni kemur fram að danskir dómstólar hafi þegar tekið tillit til slíkra hvata í sumum málum sem komið hafa til þeirra kasta. Þar er þó einnig nefndur dómur frá 2025 um tilraun til manndráps þar sem meirihluti réttarins taldi að gildandi refsiþyngingarákvæði um trú brotaþola ætti ekki við. Með nýju reglunni gætu dómstólar byggt beint á heiðurstengda hvatanum við ákvörðun refsingar.
Ákvæðin bæst við í áföngum
Danir þyngdu árið 2008 hámarksrefsingu úr tveimur árum í fjögur í málum þar sem fólk er þvingað til hjónabands. Árið 2019 tóku gildi ákvæði sem heimila að refsa foreldri fyrir að senda barn til útlanda eða láta það dvelja þar við aðstæður sem stofna heilsu þess eða þroska í alvarlega hættu. Ákvæðið getur tekið til svonefndra enduruppeldisferða.
Sama ár var tekið fram í hegningarlögum að trú eða menningarvenjur gætu ekki orðið til refsimildunar. Sú breyting fylgdi dómi frá Næstved þar sem rétturinn hafði við ákvörðun refsingar litið til þess að ofbeldi foreldra gegn börnum þeirra hefði verið menningarlega skilyrt. Árið 2021 var félagslegt taumhald nefnt sérstaklega í refsiákvæði um andlegt ofbeldi. Þá var ákvæðið um nauðungarhjónabönd einnig víkkað svo það næði til þess að þvinga fólk til að ganga í hjónabandslíkt samband eða halda því með nauðung í slíku sambandi eða hjónabandi.
Yfir þúsund erindi til ráðgjafa
Í Danmörku fengu sérhæfðir öryggisráðgjafar (sikkerhedskonsulenter) 1.031 erindi vegna heiðurstengdra mála árið 2025 samkvæmt nýjustu árstölum dönsku landsmiðstöðvarinnar MÆRK. Erindin voru 827 árið áður og fjölgaði því um tæp 25%. Alls vörðuðu 39% erindanna börn undir 18 ára aldri. Ráðgjafarnir fengu 55 ný erindi vegna enduruppeldisferða eða þvingaðrar dvalar erlendis. Sú tala nær bæði til barna og fullorðinna.
MÆRK bendir á að aukin vitund um þjónustuna og meiri geta til að taka við erindum geti skýrt hluta fjölgunarinnar.
Sjaríaráð nefnd í greinargerð
Frumvarpið myndi einnig gera refsivert að sitja í sjálfskipuðu ráði sem starfar með dómslíku yfirbragði, ef ásetningurinn er að koma afbroti undan opinberri saksókn. Í greinargerðinni er dæmi nefnt um ímam sem tekur mál um nauðungarhjónaband eða ofbeldi gegn maka til úrlausnar innan sjaríaráðs til að halda því frá yfirvöldum. Ákvæðið nær til brota gegn hegningarlögunum almennt. Viðurlög yrðu sekt eða allt að fjögurra ára fangelsi. Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir að lögregla geti beitt úrræðum á borð við símahlerun við rannsókn slíkra mála, að uppfylltum skilyrðum réttarfarslaga.
Sjaríaráð
Kúgun í Kaupmannahöfn
Í fjögur ár leitaði kona sem kölluð er Samira til ímama og trúfélaga í Danmörku til að fá skriflega staðfestingu á því að hún væri skilin samkvæmt íslömskum reglum. Hún fór á milli staða eftir ábendingum en fékk að eigin sögn sömu svör alls staðar. Ímamarnir sögðust ekki geta gefið henni slíka staðfestingu.
Danska dagblaðið Berlingske rakti sögu hennar í febrúar 2020 í umfjöllun um trúarleg ráð í Kaupmannahöfn. Íslamska miðstöðin fyrir Evrópulönd, sem var til húsa við Bispevej í norðvesturhluta borgarinnar, lýsti því sjálf að hún gæfi út íslamska úrskurði og veitti svör um hjónabönd, skilnaði, erfðir og önnur álitaefni um trú og breytni.
Blaðið greindi jafnframt frá því að tvær aðrar moskur störfuðu sem sjaríaráð. Í umfjölluninni sagði ímam að afskipti ímama af skilnaðarmálum væru meðal stærstu áskorana sem múslimskar konur stæðu frammi fyrir.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗