ÁTVR hættir sölu neftóbakshorna
Innlent | mbl | 11.11.2026 | 14:12
ÁTVR hefur ákveðið að hætta framleiðslu neftóbakshorna og gerir ráð fyrir að birgðir þeirra klárist í nóvember. Þegar þær tæmast verður neftóbak eingöngu fáanlegt í 50 gramma plastdósum.
Í tilkynningu frá ÁTVR segir að sala neftóbaks hafi dregist mikið saman undanfarin ár. Í ljósi þess og kröfu um hagræðingu telji stofnunin ekki forsvaranlegt að selja neftóbak í fleiri en einni gerð umbúða.
Íslenskt neftóbak hefur verið selt frá árinu 1941 í ýmiss konar ílátum, meðal annars dósum og krukkum. Neftóbakshornin komu fyrst í sölu árið 1992.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗