„Það er ekki nóg að kenna börnum að lesa“

Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Bryndís Loftsdóttir og Bjarni Fritzson á bókamessunni í dag. Ljósmynd/Aðsend

Reykjavíkurborg hefur aukið fjármagn til bókakaupa fyrir skólabókasöfn borgarinnar. Fjármunirnir fara meðal annars í kaup á nýjum barnabókum með það að markmiði að efla lestraráhuga og læsi barna og tryggja að nemendur hafi gott aðgengi að fjölbreyttu og spennandi lesefni.

Bjarni Fritzson, formaður skóla- og frístundaráðs, og Þorvaldur Davíð Kristjánsson, varaformaður ráðsins, heimsóttu barnabókamessuna á Laugardalsvelli í dag og kynntu sér nýútkomnar barnabækur. Þar er fjölbreytt úrval nýrra bóka fyrir börn og ungmenni kynnt, en mikill fjöldi barnabóka kemur jafnan út fyrir jólin.

„Það er ekki nóg að kenna börnum að lesa, við þurfum líka að kveikja hjá þeim löngun til að lesa. Þar skipta öflug skólabókasöfn og gott aðgengi að nýjum og spennandi bókum miklu máli,“ segir Bjarni og Þorvaldur Davíð tekur undir það. 


Þeir segja mikilvægt að fylgja öflugri lestrarkennslu eftir með því að skapa umhverfi þar sem börn hafa raunverulegt val um bækur sem höfða til þeirra. Nýjar bækur, heimsóknir höfunda í skóla og öflug skólabókasöfn geti þannig unnið saman að því að vekja áhuga barna á lestri og gera lestur að eðlilegum hluta af þeirra daglega lífi.

„Góð bók byggir upp orðaforða og lesskilning en getur líka vakið ímyndunaraflið og gefið börnum kærkomið hlé frá hraða og áreiti hversdagsins. Við viljum að börn í Reykjavík finni bækur sem þau geta gleymt sér í og að nýjar og spennandi bækur rati hratt inn á skólabókasöfnin okkar,“ segir Þorvaldur Davíð. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅