Leggja kvennaliðið niður fyrir norðan

Kvennaliðið hefur verið lagt niður.

Kvennaliðið hefur verið lagt niður. Ljósmynd/Dalvík/Reynir

Dalvík/Reynir verður ekki með meistaraflokk kvenna í fótbolta á næsta tímabili. Félagið endurvakti liðið fyrir þremur árum eftir um þriggja áratuga hlé.

Samkvæmt yfirlýsingu félagsins var samstarf við Þór/KA forsenda þess að hægt væri að halda liðinu úti. Ákvörðun KA um að slíta samstarfinu við Þór hafi breytt þeirri stöðu.

Dalvík/Reynir hafnaði í sjöunda sæti 2. deildar á nýliðnu tímabili.

Félagið hefur áhyggjur af því að stúlkur í yngri flokkum eigi nú ekki kost á að taka skrefið upp í meistaraflokk innan þess. Vonir standa þó til að hægt verði að koma liðinu aftur af stað.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅