Hætta í háloftunum: Farþegi sagðist vera með sprengju og ætlaði inn í flugstjórnarklefann

Kristinn H. Guðnason

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 14:30

Maðurinn reyndist vera eftirlýstur af innflytjenda og tollamálstofnuninni.

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn á flugvellinum í New Orleans í Bandaríkjunum eftir að hafa hótað því að vera með sprengju. Maðurinn reyndi að komast inn í flugstjórnarklefa vélarinnar í miðju flugi.

Tímaritið People greinir frá þessu.

Rony Gomez-Alberto, 34 ára farþegi, var handtekinn á flugvellinum í New Orleans á mánudag, 9. nóvember. Flugmenn vélarinnar höfðu sent út neyðarskilaboð til flugturnsins eftir að hann reyndi að komast inn í flugstjórnarklefann og hótaði áhöfninni að hann væri með sprengju á sér.

Um var að ræða flug United Airlines frá Newark í New Jersey til New Orleans. 46 farþegar voru um borð og 6 manna áhöfn. Þegar hið þriggja og hálfs tíma flug var um það bil hálfnað byrjaði Gomez-Alberto að hóta áhöfninni og hegða sér á undarlegan hátt.

Áhöfnin náði hins vegar að halda Gomez-Alberto í skefjum og lenda vélinni á öruggan hátt. Var lögregla viðbúin við lendingu, handtók hann og færði í fangageymslu. Síðar kom í ljós að Gomez-Alberto væri eftirlýstur af innflytjenda og tollastofnuninni (ICE) en hann er frá Mið-Ameríkuríkinu Hondúras.

Ekki er ljóst hvert framhaldið verður. Það er hvort honum verður vísað úr landi eða hvort hann verður ákærður fyrir uppákomuna um borð í vélinni.

„Flug númer 2174 frá United frá Newark til New Orleans lenti heilu og höldnu eftir truflandi atvik þar sem farþegi um borð kom við sögu. Lögreglan tók á móti vélinni við komu,“ segir í tilkynningu United Airlines.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅