Fleiri breytingar á knattspyrnunni fyrir norðan - „Það sem veldur okkur mestum áhyggjum“

Dalvík/Reynir hefur ákveðið að leggja niður kvennalið sitt í meistaraflokki, þremur árum eftir að liðið var endurvakið eftir þriggja áratuga hlé á starfseminni. 

Ákvörðunin er tekin í kjölfar þess að samstarfi Þórs og KA lauk í kvennaboltanum. Í yfirlýsingu Dalvíkur/Reynis segir að það hafi óneitanlega haft mikil áhrif.

„Sú ákvörðun hefur áhrif langt út fyrir þeirra eigið félag.  Þegar leikmannafjöldi í kvennaknattspyrnu á Norðurlandi er takmarkaður getur breyting hjá einu félagi haft keðjuverkandi áhrif á önnur. Fyrir okkur á Dalvík eru þau áhrif nú orðin svo mikil að við sjáum okkur ekki fært að halda úti meistaraflokki áfram,“ segir í yfirlýsingu félagsins.

„Þetta snýst þó um miklu meira en eitt lið eða eina keppnistíð. Það sem veldur okkur mestum áhyggjum er hvað þessi niðurstaða þýðir fyrir stelpurnar sem eru að alast upp innan félagsins okkar.

Meistaraflokkur er ekki bara lið sem mætir til leiks um helgar. Hann er markmið fyrir yngri iðkendur. Hann sýnir stelpunum okkar að það sé hægt að byrja að æfa fótbolta sem barn á Dalvík og halda áfram alla leið upp í meistaraflokk, í sínu eigin félagi og í sínu eigin samfélagi. Þegar sú leið hverfur verður bilið milli yngri flokka og fullorðinsknattspyrnu miklu stærra.“

Yfirlýsing Dalvíkur/Reynis í heild:

Leiðarlok hjá meistaraflokki kvenna Dalvíkur/Reynis 

Þetta er yfirlýsing sem við svo sannarlega hefðum ekki viljað þurfa að senda frá okkur.

Fyrir aðeins þremur árum var meistaraflokkur kvenna endurvakinn eftir um 30 ára hlé. Það var stórt skref fyrir félagið og samfélagið okkar. Við vissum frá upphafi að verkefnið yrði krefjandi. Leikmannahópurinn hefur verið fámennur og oft þurft mikla vinnu, útsjónarsemi og ómælda sjálfboðavinnu til að halda liðinu gangandi. En við gerðum það vegna þess að við trúðum á verkefnið og mikilvægi þess að stelpur á Dalvík ættu sér raunverulega leið áfram í fótboltanum.

Undanfarin þrjú ár höfum við átt í samstarfi við Þór/KA í kvennaknattspyrnu. Það samstarf hefur verið okkur afar mikilvægt og gert okkur kleift að halda úti meistaraflokki. Þegar KA tók ákvörðun um að draga sig úr samstarfi við Þór breyttust hins vegar forsendur verulega. Sú ákvörðun hefur áhrif langt út fyrir þeirra eigið félag. Þegar leikmannafjöldi í kvennaknattspyrnu á Norðurlandi er takmarkaður getur breyting hjá einu félagi haft keðjuverkandi áhrif á önnur. Fyrir okkur á Dalvík eru þau áhrif nú orðin svo mikil að við sjáum okkur ekki fært að halda úti meistaraflokki áfram.

Þetta snýst þó um miklu meira en eitt lið eða eina keppnistíð.

Það sem veldur okkur mestum áhyggjum er hvað þessi niðurstaða þýðir fyrir stelpurnar sem eru að alast upp innan félagsins okkar.

Meistaraflokkur er ekki bara lið sem mætir til leiks um helgar. Hann er markmið fyrir yngri iðkendur. Hann sýnir stelpunum okkar að það sé hægt að byrja að æfa fótbolta sem barn á Dalvík og halda áfram alla leið upp í meistaraflokk, í sínu eigin félagi og í sínu eigin samfélagi.

Þegar sú leið hverfur verður bilið milli yngri flokka og fullorðinsknattspyrnu miklu stærra.

Við megum heldur ekki vanmeta forvarnargildi íþrótta. Það skiptir máli að ungt fólk eigi sér vettvang, tilheyri hópi, setji sér markmið og finni tilgang og félagsskap í heilbrigðu tómstundastarfi. Fyrir ungar stelpur skiptir máli að sjá eldri stelpur og konur æfa og keppa fyrir sama félag og þær sjálfar. Þær þurfa fyrirmyndir sem eru nálægt þeim og leið sem þær geta séð sjálfar sig feta.

Meistaraflokkur kvenna er því ekki eingöngu verkefni þeirra kvenna sem þar spila hverju sinni. Hann er hluti af uppbyggingu alls kvennastarfs félagsins og fjárfesting í framtíð þeirra stelpna sem nú eru í yngri flokkunum.

DALVÍK/REYNIR HEFUR LÍKA SKAPAÐ TÆKIFÆRI FYRIR STELPUR UTAN DALVÍKUR

Það hefur jafnframt verið mikilvægt fyrir okkur að geta skapað tækifæri fyrir leikmenn frá Akureyri og nágrenni sem af einhverjum ástæðum hafa ekki fengið þau tækifæri sem þær þurfa þar.

Ekki komast allar stelpur strax í sterkustu liðin. Það þýðir ekki að þær hafi ekki hæfileika, metnað eða framtíð í knattspyrnu. Stundum þurfa leikmenn einfaldlega annan vettvang til að fá mínútur, öðlast reynslu, byggja upp sjálfstraust og halda áfram að þroskast. Þar getur félag eins og Dalvík/Reynir gegnt gríðarlega mikilvægu hlutverki.

Við höfum getað tekið á móti leikmönnum, gefið þeim tækifæri til að spila meistaraflokksknattspyrnu og á sama tíma styrkt okkar eigið starf. Þetta hefur verið gagnkvæmt samband sem hefur skipt máli fyrir kvennaknattspyrnuna á svæðinu.

HVERNIG ÆTLUM VIÐ AÐ BYGGJA UPP KVENNAKNATTSPYRNU Á NORÐURLANDI?

Við skiljum vel þau sjónarmið að skapa þurfi fleiri tækifæri fyrir unga og efnilega leikmenn. Það markmið styðjum við heilshugar.

En þá verðum við líka að spyrja hvort leiðin að því markmiði megi verða til þess að tækifærum fækki annars staðar.

Ef afleiðingin verður sú að minni félög geta ekki lengur haldið úti meistaraflokki, þá eru færri sæti í boði fyrir leikmenn, færri fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur og færri leiðir fyrir stelpur til að halda áfram í íþróttinni.

Það hlýtur að vera sameiginlegt verkefni okkar allra að tryggja að stelpa sem æfir fótbolta á Dalvík, Akureyri, Húsavík eða annars staðar á landsbyggðinni hafi raunhæft tækifæri til að halda áfram að spila þegar hún eldist.  Til þess þarf samstarf.

Við hefðum því viljað sjá meira samtal og meiri samvinnu milli þeirra félaga sem ákvörðunin hefur áhrif á. Þegar leikmannahópurinn er jafn viðkvæmur og raun ber vitni verðum við að horfa út fyrir mörk hvers félags og sjá heildarmyndina.

STOLT ÞRÁTT FYRIR SÁR VONBRIGÐI

Þó niðurstaðan sé okkur gríðarleg vonbrigði er stoltið ekki minna.

Við erum ótrúlega stoltar af því að hafa endurvakið meistaraflokk kvenna hjá Dalvík/Reyni eftir um 30 ára hlé og haldið honum gangandi síðustu þrjú ár. Það gerðist ekki af sjálfu sér.

Það gerðist vegna leikmanna sem mættu á æfingar og í leiki, jafnvel þegar hópurinn var lítill og verkefnið erfitt. Það gerðist vegna þjálfara, stjórnar og fólks í kringum liðið sem neitaði að gefast upp.

Og síðast en ekki síst gerðist það vegna sjálfboðaliðanna okkar. Fólksins sem gaf tíma sinn og vinnu svo við gætum haldið úti meistaraflokki kvenna. Slíkt starf verður aldrei metið að fullu til fjár.

Við viljum einnig færa áhorfendum okkar og stuðningsfólki innilegar þakkir. Þið sem mættuð á völlinn, hvöttuð stelpurnar áfram, fylgdust með liðinu og sýnduð okkur að meistaraflokkur kvenna á heima á Dalvík. Stuðningurinn hefur skipt okkur meira máli en orð fá lýst.

Og auðvitað stærsta þakklætið til stelpnanna sjálfra. Þið tókuð þátt í að skrifa nýjan kafla í sögu félagsins.

ÞETTA ÞARF EKKI AÐ VERA ENDIRINN

Þótt við stöndum nú á leiðarlokum viljum við ekki líta á þetta sem endanlegan endi meistaraflokks kvenna hjá Dalvík/Reyni.

Við viljum trúa því að þetta séu kaflaskil.

Við vonum að sú vinna sem hefur verið unnin síðustu þrjú ár glatist ekki og að áður en langt um líður fái stelpur aftur tækifæri til að klæðast búningi Dalvíkur/Reynis í meistaraflokki.

Því þetta snýst ekki bara um fótbolta. Þetta snýst um tækifæri, fyrirmyndir, samfélag og það að stelpur á Dalvík geti átt sér þann draum að spila fyrir sitt félag, í sínum heimabæ.

Við eigum ekki að sætta okkur við að sá draumur hverfi.

Takk fyrir þessi þrjú ár.

Takk stelpur.

Takk sjálfboðaliðar.

Takk þjálfarar og allir sem lögðu hönd á plóg.

Og takk kæru styrktaraðilar, áhorfendur og stuðningsfólk fyrir að standa með okkur.

Við erum stolt af því sem við byggðum upp og vonum innilega að sagan um meistaraflokk kvenna hjá Dalvík/Reyni sé ekki búin.

Stjórn kvennaráðs D/R

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅