ÁTVR hættir sölu neftóbakshorna

Innlent | mbl | 11.11.2026 | 14:12

Tóbakshornin komu fyrst í sölu árið 1992.

Tóbakshornin komu fyrst í sölu árið 1992. Ljósmynd/Aðsend

ÁTVR hefur ákveðið að hætta framleiðslu neftóbakshorna og gerir ráð fyrir að birgðir þeirra klárist í nóvember. Þegar þær tæmast verður neftóbak eingöngu fáanlegt í 50 gramma plastdósum.

Í tilkynningu frá ÁTVR segir að sala neftóbaks hafi dregist mikið saman undanfarin ár. Í ljósi þess og kröfu um hagræðingu telji stofnunin ekki forsvaranlegt að selja neftóbak í fleiri en einni gerð umbúða.

Íslenskt neftóbak hefur verið selt frá árinu 1941 í ýmiss konar ílátum, meðal annars dósum og krukkum. Neftóbakshornin komu fyrst í sölu árið 1992.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅