ÁTVR kveður neftóbakshornin – Löng saga senn á enda

ÁTVR hefur ákveðið að hætta framleiðslu neftóbakshorna og munu þau því brátt hverfa af markaði. Gert er ráð fyrir að síðustu birgðirnar klárist í nóvember.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÁTVR en þar segir að ákvörðunin sé tekin í ljósi þess að sala neftóbaks hafi dregist verulega saman undanfarin ár.

Neftóbakshornin komu fyrst á markað árið 1992 og hafa því verið í sölu í 34 ár. Íslenskt neftóbak á sér þó mun lengri sögu en það hefur verið selt frá árinu 1941, meðal annars í dósum og krukkum.

Að sögn ÁTVR kalla minnkandi sala og auknar kröfur um hagræðingu á breytingar. Fyrirtækið telji ekki lengur forsvaranlegt að bjóða neftóbak í fleiri en einni tegund umbúða.

Þegar síðustu neftóbakshornin seljast verður því aðeins hægt að kaupa íslenskt neftóbak í 50 gramma plastdósum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅