Íslandsmeistarar krýndir í Hafnarfirði

Birnir Freyr Hálfdánarson er einn fremsti sundmaður Íslands í dag.

Birnir Freyr Hálfdánarson er einn fremsti sundmaður Íslands í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

Íslandsmeistaramótið og unglingameistaramótið í sundi í 25 metra laug fer fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði frá föstudegi til sunnudags.

Mótið er síðasta tækifæri sundfólks til að tryggja sér sæti á Norðurlandameistaramótinu í Vilníus í Litháen dagana 4. til 6. desember. Landsliðshópurinn verður tilkynntur að keppni lokinni.

Tvö Íslandsmet féllu á CUBE-móti SH í október. Birnir Freyr Hálfdánarson synti 200 metra fjórsund á 1:57,57 mínútum og bætti 23 ára gamalt met Arnar Arnarsonar. Símon Elías Statkevicius bætti eigið met í 50 metra skriðsundi þegar hann synti á 21,73 sekúndum.

Birnir Freyr og Snorri Dagur Einarsson keppa á heimsmeistaramótinu í 25 metra laug í Peking dagana 1. til 6. desember.

Mótið í Ásvallalaug er haldið í samstarfi við Íþróttasamband fatlaðra. Undanrásir hefjast klukkan 9 og úrslit klukkan 16.30. Keppt verður í sundum frá 50 upp í 1.500 metra auk boðsunda.

Aðgangur er ókeypis. Sýnt verður frá mótinu á sund.live og úrslit birtast jafnóðum á Swimify.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅