Ný leið til að greina nauðgunarlyf

Lítill tími gefst til að prófa fyrir GHB áður en öll ummerki þess hverfa þar sem lyfið, sem er algengt að nota með því að lauma því í drykki grunlausra fórnarlamba, skilst hratt út úr blóði og þvagi. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Svissneskir vísindamenn hafa fundið nýja leið til að greina hið alræmda nauðgunarlyf smjörsýru (GHB) í þvagi allt að 72 klukkustundum eftir inntöku, sem gæti orðið mikil lyftistöng fyrir rannsóknir á kynferðisbrotum.

Háskólinn í Zürich sagði í yfirlýsingu að uppgötvunin gæti gefið inntöku GHB til kynna jafnvel þegar lyfið er ekki lengur greinanlegt með hefðbundnum greiningaraðferðum. Hver klukkustund skipti sköpum þegar kemur að greiningu lyfja sem notuð eru til að svipta fórnarlömb meðvitund.

Lítill tími gefst til að prófa fyrir GHB áður en öll ummerki þess hverfa þar sem lyfið, sem er algengt að nota með því að lauma því í drykki grunlausra fórnarlamba, skilst hratt út úr blóði og þvagi. Samkvæmt Háskólanum í Zürich er venjulegur greiningargluggi um sex klukkustundir í blóði og tólf í þvagi.

Greinanlegt í allt að þrjá daga

Teymi undir forystu Andreu Steuer við Réttarlæknisfræðistofnun háskólans hafði árið 2021 átt þátt í að uppgötva efnilegt lífmerki fyrir lyfið – efnasamband GHB og sykurs, sem talið er vera ríbósi, þekkt sem GHB-pentósi.

„Ólíkt GHB sjálfu helst þetta lífmerki greinanlegt í þvagi lengur eftir inntöku,“ sagði í yfirlýsingunni.

Rannsóknin benti til þess að efnasambandið héldist greinanlegt í allt að þrjá daga eftir inntöku GHB, sem er lengsti greiningargluggi sem greint hefur verið frá fyrir beint GHB-tengt lífmerki til þessa.

Greindu 2.414 þvagsýni

Í rannsókn sinni, sem birtist í síðustu viku í ritrýnda vísindatímaritinu Drug Testing and Analysis, greindu vísindamennirnir 2.414 nafnlaus þvagsýni úr raunverulegum málum frá árinu 2024.

Vísindamennirnir gátu greint GHB-pentósa í 14 sýnum þrátt fyrir að mælt magn GHB væri undir viðmiðunarmörkum prófsins.

„Í átta af þessum 14 málum studdu málsatvik grun um að GHB hefði áður verið tekið inn eða gefið,“ sagði í yfirlýsingunni.

Meðal þessara mála voru þrjú meint refsiverð brot, þar af tvö rán og eitt meint kynferðisbrot, þar sem þvagsýnum var ekki safnað fyrr en 13–16 klukkustundum eftir atvikið.

„Niðurstöðurnar eru fyrsta vísbendingin úr réttarlæknisfræðilegri framkvæmd um að GHB-pentósi haldist greinanlegur lengur en venjulegur greiningargluggi GHB,“ sagði Steuer í yfirlýsingunni.

Þótt niðurstöðurnar lofi góðu sögðu vísindamennirnir að þær gerðu ekki enn kleift að ákvarða greiningaráreiðanleika aðferðarinnar eða hámarksgreiningartíma í einstökum tilvikum.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅