Allsherjarverkfall á Spáni – hörð átök í Málaga

Óeirðalögregla myndar múr fyrir framan hóp mótmælenda sem krefjast einkum viðráðanlegs húsnæðisverðs, en kröfurnar eru fleiri í stóraðgerð sem sameinar fyrsta allsherjarverkfall Spánar í fjórtán ár og almenn mótmæli vegna óstjórnar Sánchez forsætisráðherra. AFP/Javier Soriano

Allsherjarverkfall á Spáni hófst á miðnætti í nótt, það fyrsta í fjórtán ár, sprottið af þeirri megnu óánægju sem kveikt hefur fjöldamótmæli og blóðugar óeirðir með skemmdarverkum og íkveikjum allt frá Frakklandi austur til Albaníu vikum saman.

Aðgerðirnar, sem húsnæðisaðgerðasinnar skipuleggja í samstarfi við tvö stærstu verkalýðsfélög Spánar, Comisiones Obreras, CCOO, og Unión General de Trabajadores, UGT, hófust í Málaga á Suður-Spáni með fjöldafundi á torginu Plaza de la Constitución sem einmitt var miðpunktur mótmælanna vegna húsnæðismála í landinu í haust.

Verkfallsverðir gengu fylktu liði um sögulega miðbæinn í Málaga – þar sem meðal annars er að finna safn um listmálarann Pablo Picasso, sem er á æskuheimili hans – hrópuðu slagorð gegn fasteignabraski og hvöttu skemmtistaði og veitingahús sem opin voru fram eftir til að loka dyrum sínum.

Mótmælandi í Málaga veifar lyklakippu sem tákni um rándýran húsnæðismarkað sem er við það að ríða almenningi á slig. Til harðra átaka kom í Málaga í morgun þegar mótmælendur hugðust meina strætisvögnum að hefja morgunakstur sinn. AFP/Jorge Guerrero

Óþekktu efni kastað í augu verkfallsvarða

Er leið á nóttina magnaðist spennan nærri götunni Calle de los Mártires (einmitt götu píslarvottanna) þegar óþekktu efni var kastað út um dyr skemmtistaðar í augu nokkurra verkfallsvarða sem leita þurftu á læknavakt og hefur athæfið verið kært.

Um klukkan fjögur í nótt að staðartíma söfnuðust verkfallsverðir saman við heildsölumarkaðinn Mercamalaga. Þar upplýstu verkalýðsleiðtogar CCOO og UGT um markmið verkfallsins sem meðal annars eru launahækkanir, stytting vinnuvikunnar og húsnæði á viðráðanlegu verði fyrir almenning.

Mótmælendur ganga fylktu liði um götur Barselóna í Katalóníuhéraði, mótmælt er um gervallan Spán og allsherjarverkfall tók gildi á miðnætti. AFP/Josep Lago

Alvarlegustu átökin brutust út skömmu síðar við höfuðstöðvar strætisvagnafyrirtækisins Empresa Malagueña de Transportes, EMT. Um 200 mótmælendur lokuðu þá aðalhliðinu til að koma í veg fyrir að strætisvagnar kæmust út í morgunakstur. Í hópi mótmælenda voru þekktir stjórnmálamenn í Andalúsíu, þeir Toni Valero í Frente Amplio-flokknum og Nico Sguiglia í Podemos, en báðir flokkarnir staðsetja sig vinstra megin við PSOE, jafnaðarmannaflokk Pedro Sánchez forsætisráðherra.

Óeirðasveitir gera áhlaup

Óeirðasveitir ríkislögreglunnar Policía Nacional gerðu áhlaup að mannfjöldanum og beittu kylfum til að ryðja brautina svo hægt væri að hleypa vögnum í lágmarksþjónustu út úr vagnageymslunni.

Morgunaðgerðir verkfallsins fóru að mestu fram í vesturhluta borgarinnar og hófust við neðanjarðarlestarstöðina Huelin/Princesa klukkan sjö í morgun, áður en mótmælendur sameinuðust á útifundi nemenda og kennara fyrir utan menntamálaráðuneyti héraðsstjórnar Andalúsíu nú í hádeginu.

Mótmælendur ganga fylktu liði um vesturbæ Málaga nú um hádegisbil þar sem kennarar og nemendur héldu fjölmennan útifund í hádeginu. Í dag tekur fjöldi spænskra stétta höndum saman og krefst úrbóta. AFP/Jorge Guerrero

Óheyrileg dýrtíð

Vikur eru síðan boðað var til verkfallsins sem ekki er nema að hluta til sprottið af launakröfum svo sem þekkist norður í álfu. Í Suður-Evrópu er það lenska að almenningur leggi niður vinnu þegar virkilega þykir tími til kominn að opna augu stjórnvalda.

Óheyrileg dýrtíð á leigumarkaði, lágmarkslaun á pari við leiguverð meðalíbúðar og víða um land óviðunandi opinber þjónusta er eitthvað sem spænskur almenningur vill ekki una lengur og hafa margra vikna mótmæli haft sitt að segja.

Húsnæðismálin hafa vegið þyngst á Spáni og virðast ætla að steypa vinstristjórn Pedro Sánchez sem gegnt hefur embætti við hóflegar vinsældir og þótt meira til skrauts en pólitískra átaka.

Allt ætlaði um koll að keyra þegar hin 87 ára gamla Maricarmen Abascal var borin út af heimili sínu í Madríd 23. september eftir að fasteignafélagið Urbagestión keypti bygginguna og hugðist hækka húsaleigu gömlu konunnar úr 500 evrum á mánuði í 2.650. Maricarmen lést hálfum mánuði síðar og fékk þegar í stað stöðu eins konar píslarvottar í augum ævareiðs almennings í Madríd og víðar.

Andlát hennar bar að garði fimm dögum eftir að Sánchez sá sitt óvænna og lagði tvær úrbótatilskipanir um húsnæðismál fyrir þingið.

Þingið felldi tilskipanirnar, þar á meðal með atkvæðum katalónska flokksins Junts, og Sánchez boðaði til kosninga sem fram fara 29. nóvember í stað næsta sumars og ganga þegar undir nafninu 29-N í spænskum fjölmiðlum.

Spænski forsætisráðherrann Pedro Sánchez, uppnefndur „perro Sánchez“, hundurinn Sánchez, þykir meira til skrauts en átaka á spænska stjórnarheimilinu þótt hann hafi hlegið dátt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í september. Heima fyrir þykir hann standa fyrir flest annað en sameinaða þjóð og hefur boðað til kosninga í nóvember í kjölfar þjóðarreiði vegna 87 ára gamallar konu sem borin var út úr íbúð sinni og lést í kjölfarið. AFP/Marin Ludovic

Partido Popular með 31 prósents fylgi

Kosningaspár fjölda kannanafyrirtækja eru uppfærðar daglega og samkvæmt mörgum þeirra er PSOE, jafnaðarmannaflokkur Sánchez, kominn að fótum fram. Spá Poliwave frá í gær spáir mið-hægriflokknum Partido Popular mestu fylgi á landsvísu með 31 prósent atkvæða og 130 þingsæti, en í 29-N verður kosið um öll 350 sætin í neðri deildinni Congreso de los Disputados og 209 af 267 sætum í öldungadeildinni Senado.

PSOE mælist með 27,7 prósenta fylgi í spá Poliwave og hægriöfgaflokkurinn Vox með 18,6 prósent og bendir greining hugveitunnar Fondation Robert Schuman frá því í gær til þess að kosningarnar 29. nóvember muni marka endalok valdatíma Pedro Sánchez forsætisráðherra sem hefur mátt þola tvö nánast rothögg síðustu vikur, útburð Maricarmen og lestarslys sem kostaði hátt í hundrað mannslíf – og það í annað skiptið á árinu.

Lögreglumenn hafa afskipti af mótmælendum í Barselóna í morgun, óvíst hvort um handtöku var að ræða. AFP/Manaure Quintero

Diario Sur

El País

El Mundo

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅