Lögregla rannsakar hótanir gegn hundruðum skóla

Hótanirnar bárust hundruðum skóla í tölvupósti.

Hótanirnar bárust hundruðum skóla í tölvupósti. Ljósmynd/Colourbox

Lögregla í Bretlandi og á Írlandi rannsakar hótanir sem bárust hundruðum skóla í tölvupósti. Hún telur skilaboðin gabb og segir ekki þörf á að rýma skólana.

Skólum í Skotlandi, á Norður-Írlandi og á Írlandi bárust hótanirnar.

Þær koma í kjölfar sambærilegra hótana í síðustu viku sem beindust að fjölmiðlum í Bretlandi og á Írlandi og flugferðum frá Bretlandi og öðrum Evrópulöndum.

Nokkrir skólar rýmdir í Skotlandi

Skoska lögreglan sagði í yfirlýsingu að þótt skilaboðin væru óhugnanleg væri ekkert sem benti til þess að raunveruleg hætta væri á ferðum.

„Ráðleggingar okkar eru að ekki sé þörf á að rýma skóla,“ sagði lögreglan.

Dagblaðið The Herald greindi þó frá því að nokkrir skólar í Skotlandi hefðu verið rýmdir og nemendur sendir heim.

Lögreglan á Norður-Írlandi sagði einnig að hún liti á málið sem gabb. Tölvupóstur með hótun hefði verið sendur til yfir 300 skóla á svæðinu og ætti upptök sín utan Bretlands.

Anthony McNally aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði lögregluna taka atvik af þessu tagi mjög alvarlega. Hún teldi þó litla hættu stafa að almenningi.

Mikil öryggisgæsla á Írlandi

Írska lögreglan sagði skólum hafa borist skilaboð almenns eðlis sem hún teldi ekki fela í sér trúverðuga hótun. Hún ráðlegði því engri menntastofnun að rýma húsnæði sitt.

Á Írlandi er nú ráðist í umfangsmestu öryggisaðgerðir í sögu landsins vegna fundar leiðtoga Evrópuríkja sem þar fer fram í vikunni.

Fjölmiðlar í Skotlandi og á Norður-Írlandi greindu frá því að tölvupóstarnir líktust tilhæfulausum sprengjuhótunum sem bárust breskum og írskum fjölmiðlum á föstudag, meðal annars Sky News og RTÉ.

Tengsl við rússneskan hóp óstaðfest

Tilhæfulausar sprengjuhótanir beindust einnig að tugum flugferða í Evrópu í síðustu viku.

Sumar þeirra bárust í tölvupóstum undirrituðum af „baráttumönnum Male State“. Heitið er hið sama og nafn öfgasinnaðs hóps í Rússlandi sem aðhyllist kvenhatur. AFP-fréttastofan hefur þó ekki staðfest nein tengsl hópsins við skilaboðin.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅