Tveir þekktir veitingastaðir innsiglaðir í Reykjavík

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 13:44

Íslenska Hamborgarafabrikkan Mynd/Instagram

Tveir þekktir veitingastaðir í Reykjavík, Hamborgarafabrikkan á Höfðatorgi og Hlöllabátar á Bíldshöfða, hafa verið innsiglaðir af lögreglu að beiðni Skattsins.

Vísir greinir frá þessu í dag og hefur lögreglan staðfest að báðum stöðunum hafi verið lokað að beiðni skattyfirvalda. Ekki liggur fyrir hvað varð til þess að óskað var eftir lokununum.

Skatturinn hefur vísað til þagnarskyldu um málefni einstakra skattaðila og þá hefur lögregla ekki veitt upplýsingar um málin.

Á inngangi Hamborgarafabrikkunnar á Höfðatorgi hefur verið komið fyrir handskrifuðum miða þar sem segir að staðurinn sé lokaður vegna bilunar og að opnað verði innan skamms.

Hamborgarafabrikkan hefur verið starfrækt á Höfðatorgi frá árinu 2010. Núverandi eigendur eru Jón Örn Jakobsson og Jónas Thor Helgason, sem á 40 prósenta hlut í rekstrinum.

Lokun staðanna tveggja kemur í kjölfar þess að tilkynnt var á mánudag að Minigarðinum í Skútuvogi hefði verið lokað eftir rúmlega sex ára rekstur. Eigendur staðarins hafa ákveðið að óska eftir gjaldþrotaskiptum á rekstrarfélaginu Munnbitanum ehf.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅