Salma sneri baki við vinstrinu og segir frá óhugnanlegri reynslu
Salma Björk Önnudóttir, formaður ungliðahreyfingar Miðflokksins, hefur greinilega verið spurð að því hvers vegna hún hafi gengið í flokkinn. Hún útskýrir ákvörðun sína í aðsendri grein á Vísi þar sem hún opnar sig um ógnvekjandi lífsreynslu.
Rekur Salma ferðalag sitt frá því að vera, að eigin sögn, réttlætisriddari sem kaus til vinstri yfir í Miðflokkinn. Sem vinstrimaður var hún sannfærð um að hún væri meðsek í heimi sem væri gegnsýrður af ójafnrétti. Síðan eignaðist hún barn og segir að þá hafi augu hennar opnast. Vandamálið var ekki ójafnrétti heldur hugmyndir um jöfnuð.
Skólar, fæðingarorlof og trans-aktívistar
Nefnir hún í því samhengi skólakerfið sem hún telur í vanda statt vegna jafnréttishugmynda þar sem nemendur skorti bæði hvatningu og aðhald í nafni jöfnuðar. Hún vísar þó ekki í aðrar heimildir en matskerfi grunnskólanna, sem hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að vera óskýrt, en Salma fullyrðir að það hafi verið viljaverk. Rétt er þó að hafa í huga að í umræðum um nýja námskrá á árunum 2011-2013 og frekari útfærslu árið 2015 var einkum vonast eftir því að breytingarnar myndu gefa skýrari mynd af stöðu nemenda og auðvelda samanburð milli skóla. Staðan í dag bendir til þess að markmiðunum hafi ekki verið náð. Bókstafakerfinu var komið á í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á tímum þegar umræða um einkunnarverðbólgu í grunnskólum var áberandi, en nýja kerfið átti sér lengri aðdraganda og var kortlagt í nýrri aðalnámskrá frá árinu 2013. Aukna áherslu á jöfnuð má greina í aðalnámskránni þar sem jafnrétti telst til grunnþátta menntunar.
Salma nefnir eins málefni trans fólks sem dæmi um að kvenréttindabaráttan sé á rangri leið, en sá málaflokkur er Miðflokksmönnum afar hugleikinn. Fullyrðir hún meðal annars að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hafi gert „áróðursherferðir trans-aktívista“ að skyldunámi í grunnskólum borgarinnar. Er Salma þar væntanlega að vísa til hinsegin fræðslu skólanna en upplýsingar um hana má t.d. finna á vef borgarinnar en fræðslan fær stoð í aðalnámskrá og lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna frá árinu 2020, en þar segir í 15. gr.: „Á öllum skólastigum skulu nemendur hljóta jafnréttis- og kynjafræðslu við hæfi þar sem m.a. er kennt um kynjaðar staðalímyndir, kynbundið náms- og starfsval og málefni fatlaðs fólks og hinsegin fólks.“ en lögin voru meðal annars samþykkt af átta þingmönnum Miðflokksins.
Annað dæmi um skaðlega hugmynd um jöfnun sem Salma nefnir er tilhögun fæðingarorlofs, en nú er orlofinu skipt þannig að hvort foreldri fyrir sig á rétt til sex mánaða orlofs og er aðeins heimilt að framselja sex vikur sín á milli. Þetta segir Salma vera skorður á orlofinu sem hafi verið komið á í óþökk margra foreldra í samræmi við „blindar hugmyndir um jafnrétti“ sem komi í veg fyrir að foreldrar skipti orlofi eftir eigin þörfum.
Hún nefnir þó ekki að samhliða þessu fyrirkomulagi var orlofið lengt úr 10 mánuðum í tólf. Á árinu 2019 var fæðingarorlof níu mánuðir og voru þrír mánuðir bundnir hvoru foreldri fyrir sig og þrír mánuðir voru sameiginlegir. Á árinu 2020 var orlofið lengt um mánuð og voru þá fjórir mánuðir bundnir hvoru foreldri fyrir sig og sameiginlegir mánuðir voru tveir. Annað foreldri getur því í dag tekið sjö og hálfan mánuð, fái það sex vikur framseldar frá hinu foreldrinu, sem er lengsta orlof sem einu foreldri hefur staðið til boða í hér á landi. Hins vegar er það rétt hjá Salmu að margir hafa kallað eftir því að foreldrum verði frjálst að ráðstafa öllu orlofinu að eigin þörfum. Takmarkanir af þessu tagi hafa þó áratugum saman verið grundvallarþáttur fæðingarorlofskerfisins frá því að sjálfstæður réttur feðra til orlofs fór að aukast í skrefum eftir aldamótin.
Áreitni afskrifuð sem menningarmunur eða fordómar
Næst nefnir hún málefni innflytjenda þar sem hún fullyrðir að stjórnvöld hafi flutt inn í landið mikinn fjölda manna sem koma úr öðrum menningarheimi þar sem kvenréttindi eru ekki í hávegum höfð. Fullyrðir hún að þetta hafi haft margvíslegar slæmar afleiðingar og segist hafa upplifað þær á eigin skinni.
„Ég hef verið áreitt á vinnustað og yfirmaður minn afsakaði það með því að maðurinn sem áreitti mig kæmi bara frá öðrum menningarheimi. Mér hefur verið haldið í gíslingu í leigubíl hjá Senegala sem krafðist þess að ég gengist á hönd allah – þá myndi hann hleypa mér út. Þegar ég sagði frá þessu var ég skömmuð fyrir að taka fram þjóðerni mannsins – því það er rasismi.
Einnig var maður sem kom aftan að mér á skemmtistað og saug á mér hálsinn. Ég bað um að honum yrði vísað út og sökuðu vinir hans mig um rasisma og íslamófóbíu.
Mér finnst hins vegar að öryggi mitt og frelsi undan kynferðisofbeldi sé mikilvægara en óttinn við rasisma. Það er komið nóg af því að upplifun kvenna sé sett til hliðar ef hún passar ekki inn í ríkjandi hugmyndafræði.“
Ofangreint hafi því leitt hana í Miðflokkinn en hún telur að þar þori fólk að hafa hugsjónir og sé stolt af því hver það er.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗