Fjöldi enskra liða á eftir sama leikmanninum

Koni De Winter, 24 ára gamall miðvörður AC Milan á Ítalíu, er eftirsóttur og er hann orðaður við fjölda liða á Englandi.

De Winter gekk í raðir Milan frá Genoa árið 2025 og hefur sprungið út á þessari leiktíð. Er hann orðinn lykilmaður fyrir ítalska stórliðið.

Belginn er orðaður við stórliðin Chelsea, Manchester United, Liverpool og Tottenham og þá eru Leeds og Brentford einnig nefnd í samhengi við framtíð hans.

De Winter er sagður ánægður hjá Milan og er samningsbundinn félaginu til ársins 2030. Ítalska stórliðið er því ekki undir pressu að selja og þyrfti líklega hátt tilboð til.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅