Milljónakröfu hafnað vegna færslu árshátíðar

Héraðsdómur Reykjaness taldi bænum hafa verið heimilt að færa hátíðina um viku þar sem breytingin hefði verið tilkynnt skriflega með meira en mánaðarfyrirvara. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hafnarfjarðarbær hefur verið sýknaður af rúmlega 2,9 milljóna króna kröfu rekstraraðila hljóðkerfaleigu vegna breyttrar dagsetningar á árshátíð bæjarstarfsmanna.

Héraðsdómur Reykjaness taldi bænum hafa verið heimilt að færa hátíðina um viku þar sem breytingin hefði verið tilkynnt skriflega með meira en mánaðarfyrirvara.

Dómurinn féll 9. nóvember.  Málskostnaður var felldur niður.

Gat ekki sinnt verkefninu á nýrri dagsetningu

Aðilar gerðu samning árið 2019 um leigu á hljóðkerfi og ýmsum aukabúnaði vegna viðburða á vegum bæjarins. Þar á meðal var árshátíð bæjarstarfsmanna, sem samkvæmt samningsgögnum átti að fara fram fyrsta laugardag í mars.

Samningurinn var síðar framlengdur um tvö ár, án þess að gerður væri skriflegur samningur um framlenginguna. Maðurinn sem höfðaði málið annaðist tæknimál á árshátíðinni fyrstu helgina í mars 2023.

Ágreiningurinn snerist um árshátíðina árið eftir. Bærinn ákvað að halda hana 9. mars 2024 í stað 2. mars. Maðurinn kvaðst þá þegar hafa skuldbundið sig í annað verkefni 9. mars og gat því ekki sinnt árshátíðinni þann dag.

Hann taldi bæinn hafa brotið samninginn með því að færa hátíðina einhliða. Hann hefði verið reiðubúinn að sinna verkefninu á umsömdum degi og ætti rétt á greiðslu eða skaðabótum vegna tekjumissis.

Upphafleg krafa mannsins nam tæplega 3,5 milljónum króna en hann lækkaði hana við rekstur málsins í 2.912.138 krónur.

Upphaflegir skilmálar héldu gildi sínu

Dómurinn féllst á að túlka bæri framlengingu samningsins þannig að upphaflegir skilmálar héldu gildi sínu, meðal annars ákvæðið um fyrsta laugardag í mars. Bærinn yrði að bera hallann af því að ekki hefði verið gengið skriflega frá framlengingunni.

Maðurinn hefði því mátt gera ráð fyrir að árshátíðin árið 2024 yrði haldin 2. mars.

Í samningsgögnunum var hins vegar einnig fyrirvari um breytingar á viðburðahaldi. Samkvæmt honum gat bærinn hætt við leigu vegna einstakra viðburða með mánaðarfyrirvara, enda væri leigusalanum tilkynnt það skriflega.

Fyrirvarinn náði einnig til breytinga

Í tölvupóstum til mannsins 29. og 31. janúar 2024 kom fram að árshátíðin yrði haldin 9. mars. Dómurinn taldi honum þar með hafa verið tilkynnt skriflega, með meira en mánaðarfyrirvara, að hátíðin yrði færð frá 2. mars.

Ekki væri unnt að túlka samninginn svo þröngt að senda hefði þurft undirritað bréf í stað tölvupósts. Þá hafnaði dómurinn því að fyrirvarinn tæki aðeins til þess að hætt væri alfarið við viðburð en ekki breytinga á honum.

Bænum hefði því verið heimilt að færa árshátíðina og var hann sýknaður af kröfum mannsins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅