Daníel Tristan ósáttur við spiltímann í Svíþjóð

Daníel Tristan á æfingu með U21 árs landsliðinu í dag.

Það hefur verið upp og niður,“ svaraði Daníel Tristan Guðjohnsen, framherji Malmö í Svíþjóð og U21 árs landsliðsins, spurður út í stöðu sína hjá Malmö er hann ræddi við mbl.is.

„Maður hefur ekki fengið þann spilatíma sem maður hefði getað séð fyrir sér eftir síðasta tímabil. En það er bara áfram gakk og að halda áfram,“ sagði Daníel.

Hann hefur ekki beðið um útskýringar frá þjálfaranum.

„Nei, ekki þannig. Staðan núna er bara sú að hann vill spila með hinn fram yfir mig og vill ekki til dæmis prófa að spila með okkur báða. Það er því eins og ég segi: áfram gakk, halda áfram og æfa vel,“ sagði hann.

Daníel hefur komið inn af bekknum í síðustu leikjum.

„Mér finnst það hafa gengið vel. Ég hef oftast komið sterkur inn á og reynt að gera mitt besta til að hjálpa liðinu að ná þremur stigum,“ sagði hann.

Daníel var búinn að vera inn á í sjö mínútur þegar hann skoraði gegn Halmstad á dögunum.

„Það var geggjuð tilfinning að setja hann og gott fyrir sjálfstraustið,“ sagði Daníel.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅