Um 55% meiri kortavelta á J-daginn en aðra föstudaga

Mikil stemning var í miðbænum á föstudagskvöld.

Mikil stemning var í miðbænum á föstudagskvöld. mbl.is/Eyþór

Vinsældir J-dagsins svokallaða sjást vel þegar kortavelta á börum í miðborg Reykjavíkur er skoðuð. J-dagurinn var á föstudaginn var en hann hverfist um það þegar sala á Tuborg jólabjór hefst klukkan 20.59.

Í umfjöllun á vef kortafyrirtækisins Teya kemur fram að kortavelta á börum í miðborginni hafi verið 55% meiri umrætt föstudagskvöld en á venjulegu föstudagskvöldi fyrr í haust. Í fyrra var munurinn 74%.

Niðurstaða samantektar Teya er að J-dagurinn hafi verið annasamasta föstudagskvöld ársins hingað til á börum í miðbænum. Menningarnótt 2025 og 2026 eru einu dagarnir sem voru stærri en J-dagurinn 2026 þegar horft er til kortafærslna.

„Bærinn fór að fyllast strax um kvöldmatarleytið, en stökkið kom nánast á slaginu. Í ár var fjöldi færslna kl. 21:15–21:30 tvöfaldur á við venjulegt föstudagskvöld. Í fyrra var stökkið enn skarpara: á fyrsta korterinu eftir 20:59 fjölgaði færslum um 46% frá korterinu á undan og þær urðu 2,3 sinnum fleiri en á venjulegum föstudegi,“ segir á vef Teya.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅