Fleiri samningar fyrstu kaupenda þrátt fyrir samdrátt
Í svari Ragnars Þórs eru hlutdeildarlán sögð helsta úrræðið sem komið hafi verið á fót á vegum ráðuneytisins eða forvera þess. mbl.is/Eyþór
Kaupsamningum fyrstu kaupenda á húsnæðismarkaði fjölgaði á síðasta ári þótt kaupsamningum í heild fækkaði. Hlutdeild fyrstu kaupenda jókst úr 29 prósentum árið 2024 í 34 prósent árið 2025.
Þetta kemur fram í svari Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins, um fyrstu kaupendur á húsnæðismarkaði. Svarið var birt á vef Alþingis í gær.
Kaupsamningar fyrstu kaupenda voru 3.921 árið 2025, samanborið við 3.807 árið áður. Þeim fjölgaði því um 114, eða um þrjú prósent.
Á sama tíma fækkaði kaupsamningum í heild úr 13.179 í 11.657, eða um tæplega tólf prósent.
Flestir samningar árið 2021
Í svarinu eru birtar tölur um kaupsamninga fyrstu kaupenda á árunum 2007 til 2025. Hlutdeild þeirra var mest árin 2020 og 2021, eða 37 prósent bæði árin samkvæmt töflunni sem fylgir svarinu.
Kaupsamningar fyrstu kaupenda voru flestir árið 2021, alls 5.185. Fæstir voru þeir árið 2009, eða 783. Hlutdeild fyrstu kaupenda var þá jafnframt minnst á tímabilinu, 26 prósent.
Sigurður Ingi óskaði eftir upplýsingum allt aftur til ársins 2000. Í svarinu segir hins vegar að ekki sé unnt að veita áreiðanleg gögn um árlegan fjölda kaupsamninga fyrstu kaupenda fyrir tímabilið 2000 til 2006.
Upplýsingarnar byggjast á kaupskrá fasteigna og mælaborði Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um fyrstu kaupendur.
Kaupsamningar fyrstu kaupenda voru 3.921 árið 2025, samanborið við 3.807 árið áður. Þeim fjölgaði því um 114, eða um þrjú prósent. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Hlutdeildarlán helsta úrræði ráðuneytisins
Í fyrirspurninni var einnig spurt til hvaða sérstöku úrræða stjórnvöld hefðu gripið til að styðja fyrstu kaupendur og hvenær þau hefðu tekið gildi.
Í svari Ragnars Þórs eru hlutdeildarlán sögð helsta úrræðið sem komið hafi verið á fót á vegum ráðuneytisins eða forvera þess. Þau voru lögfest árið 2020 og gerðu fyrstu kaupendum undir tilteknum tekju- og eignamörkum kleift að taka vaxta- og afborganalaust lán hjá ríkinu fyrir allt að 20 til 30 prósentum af kaupverði íbúðar.
Þá er meðal annars bent á helmingsafslátt fyrstu kaupenda af stimpilgjaldi sem tók gildi árið 2014 og lög frá árinu 2017 um stuðning við kaup á fyrstu íbúð.
Síðarnefndu lögin heimiluðu fyrstu kaupendum að nýta eigin séreignarsparnað við útborgun á íbúð og ráðstafa iðgjöldum inn á höfuðstól eigin húsnæðisláns í tíu ár.
Í svarinu eru einnig rakin almennari stuðningsúrræði, meðal annars vaxtabætur, tímabundinn vaxtastuðningur árið 2024 og breytingar á lánareglum Íbúðalánasjóðs.
Tekið er fram að ekki hafi allar aðgerðirnar sérstaklega beinst að fyrstu kaupendum, þótt þær hafi nýst þeim líkt og öðrum fasteignaeigendum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

