Hjálparkall lögreglu á Austur-Jótlandi
Árósar á Austur-Jótlandi hafa orðið sérstaklega illa úti í innbrotahrinu sem lögregla gerir sitt besta til að stemma stigu við. Ekki er þó hlaupið að því með 1.239 tilkynningar um innbrot í borginni það sem af er ári og 1.811 slíkar á Austur-Jótlandi fram til 31. október. Ljósmynd/Wikipedia.org/SmartDrones Aarhus
Lögreglan á Austur-Jótlandi hinu danska á í vök að verjast í innbrotahrinu á heimili og er ástandið sýnu verst í Árósum þar sem tilkynningar um innbrot það sem af er ári eru 283 fleiri en á sama tíma í fyrra og hefur fjölgað úr 956 þá í 1.239 nú.
Hefur lögreglan nú brugðið á það ráð að leita til borgaranna um aðstoð þar sem – eins og Flemming Nørgaard, stjórnandi rannsóknarlögreglu landshlutans, orðar það – lögregla geti einfaldlega ekki verið augu og eyru alls umdæmisins.
Geisli vasaljóss í íbúð í Norður-Árósum næstliðið föstudagskvöld varð til þess að nágranni, sem leist ekki á blikuna, ákvað að hringja í lögreglu sem greip innbrotsþjóf við iðju sína á vettvangi.
Slík símtöl segir Nørgaard einmitt geta skipt sköpum nú þegar lögreglan á Austur-Jótlandi hefur frá áramótum og fram til 31. október tekið við 1.811 tilkynningum um innbrot á heimili miðað við 1.563 á sama tímabili í fyrra – og ekki hefur dregið úr það sem af er nóvember.
Jólin – gósentíð fingralangra
Segir lögregla hvort tveggja heimamenn og utanaðkomandi aðila standa að innbrotunum og heldur hún úti greiningarvinnu sem beinist meðal annars að því hvar innbrot eigi sér stað og hvernig þjófarnir komist inn á heimili fólks. Lögregla á eftirlitsakstri fær svo sendar upplýsingar um svæði þar sem títt er brotist inn auk upplýsinga um brotamenn sem vitað er að séu á ferð.
„Við höfum einfaldlega séð upp á síðkastið að við náum árangri á svæðum þar sem borgararnir hafa samband og segja að eitthvað sé að,“ segir Nørgaard við danska ríkisútvarpið DR og nú gengur það tímabil senn í garð sem einkennist af fjölda innbrota, jólin með tilheyrandi fríum og ferðalögum innanlands sem utan.
Hafi ekki afskipti af meintum brotamönnum
Biður lögregla borgarana því að vera á varðbergi og bregðast við því sem telja má grunsamlegt eða óvenjulegt, þarf ekki að vera flóknara en mannaferðir umhverfis hús sem virðist ekki vera heimili viðkomandi.
Nørgaard tekur fram að lögregla vilji ekki að almenningur grípi inn í með neinum hætti, svo sem með borgaralegum handtökum. „Þeir eiga bara að vera augu okkar á staðnum og tilkynna [grunsamlegt atferli] til stjórnstöðvar okkar,“ segir hann við DR.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗