Ellefu mánaða drengur fannst grafinn lifandi – Ótrúlegt að hann hafi lifað af

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 13:30

Michael er grunaður um að hafa grafið son sinn lifandi.

Ellefu mánaða drengur fannst á lífi eftir að hafa verið grafinn í jörðu inni í hundabúri í skóglendi í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum.

Drengsins hafði verið saknað í um sólarhring og telur lögregla að hann hafi verið neðanjarðar stóran hluta þess tíma. Faðir barnsins er grunaður um aðild að hvarfi þess, að því er fram kemur í umfjöllun NBC News.

Drengurinn, sem heitir Koah Sharpe, fannst síðdegis í gær eftir umfangsmikla leit sem nærri hundrað lögreglumenn, slökkviliðsmenn og aðrir viðbragðsaðilar tóku þátt í.

Að sögn Bryans Koon, lögreglustjóra í Lexington-sýslu, komu leitarmenn auga á ummerki um nýlegt jarðrask í skóglendi skammt frá heimili föðurafa drengsins.

„Þegar þeir byrjuðu að grafa heyrðu þeir Koah litla gráta. Eins og þið getið ímyndað ykkur hófst þá kapphlaup við tímann,“ sagði Koon á blaðamannafundi.

Hundabúrið gæti hafa bjargað lífi hans

Drengurinn var sem fyrr segir inni hundabúri sem hafði verið vafið inn í handklæði og komið fyrir í grunnri holu. Búrið var um 60 sentímetrar að lengd og breidd.

Lögreglustjórinn telur að handklæðið og búrið hafi myndað nægilegt loftrými til að drengurinn gæti andað þrátt fyrir að vera grafinn í jörðu. Hann bætti við að svalt veður gæti einnig hafa aukið lífslíkur barnsins.

Drengurinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Að sögn lögreglustjórans grét hann hástöfum þegar honum var bjargað, sem hann taldi jákvætt merki. Vonast hann til að drengurinn nái sér að fullu.

Faðirinn handtekinn

Málið hófst á mánudagsmorgun þegar faðir drengsins, Michael Comer, var einn með hann á heimili móður sinnar, Patriciu Comer. Hún hafði verið að gæta barnabarns síns en þurfti að fara til vinnu.

Þegar annar umönnunaraðili kom á staðinn voru feðgarnir horfnir.

Lögregla hóf þegar umfangsmikla leit að drengnum. Faðirinn fannst á mánudagskvöld þar sem hann faldi sig í byggingu við íbúðarhús og var handtekinn vegna gruns um innbrot en drengurinn var hvergi sjáanlegur og ekkert var vitað um afdrif hans.

Við leit á heimili föðurafa drengsins fundu lögreglumenn merki um að Koah hefði verið á heimilinu.

Það var ekki fyrr en um klukkan hálf tvö á þriðjudag sem leitarmenn fundu staðinn í skóginum þar sem barnið hafði verið grafið.

Hrein illska

Patricia Comer, amma drengsins og móðir hins handtekna, segist vera í áfalli vegna málsins.

Í samtali við NBC News sagði hún að sonur hennar hefði áður verið góður við drenginn og að ekkert hefði bent til þess að hann gæti gert honum mein.

„Ég er móðir hans og ég hefði aldrei búist við þessu af honum,“ sagði hún.

Hún lýsti því sem sonur hennar er grunaður um að hafa gert sem „hreinni illsku“ og sagði að hann ætti heima í fangelsi.

Patricia sagðist jafnframt sár yfir því að einhverjir hefðu kennt henni um atburðarásina.

„Ef ég hefði getað komið í veg fyrir þetta hefði ég gert allt sem í mínu valdi stóð. Ég hafði ekki hugmynd um að þetta myndi gerast.“

Móðir drengsins fer með fullt forræði yfir honum en hafði leyft ömmunni að gæta hans um helgar.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅