Ungstirni Liverpool ætlar sér að verða bestur í heimi
Rio Ngumoha, 18 ára kantmaður Liverpool, stefnir á að vinna Gullboltann, Ballon d'Or, einn daginn og verða besti knattspyrnumaður heims.
Ngumoha segir sigur Harry Kane, framherja Bayern Munchen, í kjörinu í síðasta mánuði hafa veitt sér mikinn innblástur.
„Þetta er stórt fyrir enska knattspyrnu. Nú hafa allir séð einn af okkur vinna Gullboltann og það hvetur fleiri til að vilja verða bestir í heimi. Mig langar að ná því og ég held að ég geti það,“ segir Ngumoha.
Ngumoha hefur átt flott tímabil og hefur hann tryggt sér sæti í enska landsliðshópnum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗