Samkomulag við Pochettino í höfn
Manchester United og Mauricio Pochettino hafa náð munnlegu samkomulagi um að hann taki við knattspyrnustjórn liðsins, samkvæmt Sky Sports.
Félagið hefur enn ekki tilkynnt um brottrekstur Michaels Carrick. Hann var á Carrington í dag og stýrði æfingu á meðan unnið var að ráðningu arftaka hans.
Pochettino er landsliðsþjálfari Bandaríkjanna og undirbýr nú liðið fyrir tvo leiki gegn Haítí í átta liða úrslitum Þjóðadeildar Concacaf. Til greina kemur að hann láti af störfum áður en verkefninu lýkur.
Gangi ráðningin eftir verður fyrsta verkefni Argentínumannsins með United útileikur gegn Liverpool á Anfield í ensku úrvalsdeildinni 22. nóvember.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗