Innbrotsþjófarnir ófundnir: Mikið af myndefni

Innbrotið varð í Mjódd aðfaranótt mánudags.

Innbrotið varð í Mjódd aðfaranótt mánudags. mbl.is/Karítas

Enginn hefur verið handtekinn vegna innbrotsins í skartgripaverslunina Gullsmiðinn í Mjóddinni aðfaranótt mánudags.

Að sögn Heimis Ríkarðssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er enginn grunaður í málinu.

Talið er að tveir karlmenn hafi brotist inn í verslunina en ekki sést í andlit þeirra á eftirlitsmyndavélum.

Margar myndavélar á svæðinu

Lögreglan hefur til rannsóknar myndefni úr myndavélum, bæði úr versluninni, Mjóddinni og nágrenni.

„Þetta er mikið efni sem þarf að skoða og fara yfir,“ segir Heimir, sem hefur ekki nákvæma tölu yfir fjölda myndavéla.

mbl.is/Karítas

Gæti tengst skipulagðri brotastarfsemi

Þjófarnir brutust inn í verslunina klukkan hálftvö um nóttina og fóru fram hjá leysigeislum til að stela skartgripum. Þeir fóru síðan út úr versluninni en fóru aftur inn í hana til að ná í meira þýfi.

Heimir kveðst ekki vita hversu lengi þjófarnir voru að verki en telur að innbrotið hafi verið þaulskipulagt. Hann segir að það kæmi sér ekki á óvart ef málið tengdist skipulagðri brotastarfsemi og man í fljótu bragði ekki eftir sams konar máli þar sem menn fara fram hjá leysigeislum á þennan hátt.

Brætt eða flutt úr landi

Spurður hvernig menn komi ránsfengi sem þessum í verð, sem er metinn á um 30 milljónir króna, segir hann erfitt að segja til um það.

„Hvort þeir reyna að koma þessu úr landi eða reyna að bræða þetta er eitthvað sem ég get ekki tjáð mig um.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅