900 þúsund bílar á ári

Fossinn fangar athyglina og búið er að koma upp góðri aðstöðu til að taka á móti ferðamönnum. mbl.is/Björn Jóhann

Kirkjufellsfoss á Snæfellsnesi, skammt vestan við Grundarfjarðarbæ, er vinsæll ferðamannastaður og segir Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri að um 900 þúsund bílar fari í gegnum bæinn á hverju ári og því til viðbótar komi 60-70 þúsund ferðamenn með skemmtiferðaskipum.

Birkir segir að Grundarfjörður geti tekið á móti fleira ferðafólki yfir ferðamannatímann, sem er alltaf að lengjast, og þar sé bæði hótel og hostel, auk skammtímaleigu í formi íbúða.

Spurður um aðgengi að Kirkjufellinu, sem á tímabili var lokað, segir Birkir Jón að það sé ríkt í Íslendingum að fá að ganga óhindrað um íslenska náttúru en til þess að upplýsa fólk um hættuna hafi verið sett upplýsingaskilti um að ekki sé æskilegt að fólk fari á fjallið veturna.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅