Hlöllabátum á Bíldshöfða lokað
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðaði Skattinn við aðgerð í morgun þar sem Hlöllabátum á Bíldshöfða var lokað ásamt fleiri veitingastöðum.
Þetta staðfestir Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
„Þetta var hefðbundin aðstoð við Skattinn og það voru fleiri staðir undir,“ segir Grétar. Hann hefur ekki vitneskju um hina staðina sem var lokað, en Hlöllabátar eru eini staðurinn sem heyrir undir lögreglustöð 4, sem sinnir meðal annars Árbæjarhverfi, Grafarholti, Grafarvogi og Mosfellsbæ.
Merkið notað af fleiri en einu félagi
Vörumerkið Hlöllabátar er notað af fleiri en einu rekstrarfélagi og er því ekki allur rekstur samlokustaðanna á sömu hendi.
Sérstakt félag rekur Hlöllabáta við Ingólfstorg í miðborg Reykjavíkur.
Hins vegar rekur félagið Hlöllabátar ehf. samlokustaði að Bíldshöfða 5 og Bústaðavegi 20, samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Hlöllabáta.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
