Segja verðlaunaboð Bandaríkjanna „viðbjóðslegt“

Bandaríkjaher greindi frá því á föstudag að boðnar væru allt að 20 milljónir dala fyrir upplýsingar um mannvirki, búnað og starfsfólk tengt kjarnorkuáætluninni. AFP

Írönsk stjórnvöld gagnrýndu í dag harðlega boð Bandaríkjanna um allt að 20 milljónir dala í verðlaun fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írans. Þau sögðu boðið viðbjóðslegt og hörmuðu það.

Verðlaunaféð jafngildir um 2,45 milljörðum íslenskra króna.

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, hvatti framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, öryggisráð samtakanna og forstjóra Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar til að fordæma boðið, sem tilkynnt var um í síðustu viku.

Bandaríkjaher greindi frá því á föstudag að boðnar væru allt að 20 milljónir dala fyrir upplýsingar um mannvirki, búnað og starfsfólk tengt kjarnorkuáætluninni. Þeim sem veittu upplýsingarnar gæti einnig boðist að flytja búferlum.

„Íslamska lýðveldið Íran skorar á framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, öryggisráðið og forstjóra Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar að fordæma þessa viðbjóðslegu tilkynningu skýrt og afdráttarlaust,“ skrifaði Araghchi í bréfi til þessara þriggja aðila.

Hann ítrekaði þá afstöðu Írana að kjarnorkuáætlun landsins væri í friðsamlegum tilgangi.

Umfang tjónsins enn óljóst

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað sagt að kjarnorkuáætlun Írans hafi í reynd verið lögð í rúst í stuttum árásum Bandaríkjahers á mikilvæg kjarnorkumannvirki í tólf daga stríði Írans og Ísraels í júní 2025.

Frá því stríði lauk hafa Íranar meinað eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar aðgang að mannvirkjunum í Fordow, Natanz og Isfahan sem urðu fyrir loftárásum.

Stríð Írans og Bandaríkjanna hófst 28. febrúar þegar Ali Khamenei erkiklerkur, æðsti leiðtogi Írans, féll í árásum Bandaríkjanna og Ísraels.

Þegar átökin voru hvað hörðust urðu kjarnorkumannvirki Írans aftur fyrir árásum Bandaríkjanna og Ísraels. Umfang tjónsins er enn óljóst.

Stríð Írans og Bandaríkjanna hófst 28. febrúar þegar Ali Khamenei erkiklerkur, æðsti leiðtogi Írans, féll í árásum Bandaríkjanna og Ísraels. AFP

Vilja að þvingunum verði aflétt

Katar og Pakistan hafa farið fyrir tilraunum til að ná samkomulagi um stríðslok.

Íranar hafa krafist þess að Bandaríkin verði við ýmsum kröfum þeirra, meðal annars um að aflétta frystingu eigna og viðskiptaþvingunum, í skiptum fyrir að Hormússund verði opnað á ný. Sundið er mikilvæg flutningsleið fyrir orkuafurðir en Íranar hafa lokað fyrir siglingar um það frá upphafi stríðsins.

Araghchi hefur áður sagt að viðræður um kjarnorkuáætlun Írans verði teknar upp á síðari stigum.

Kjarnorkuáætlunin hefur um árabil verið eitt helsta ágreiningsefni Írans og Vesturlanda. Á fyrra kjörtímabili Trumps, árið 2018, drógu Bandaríkin sig úr samningi sem gerður hafði verið í forsetatíð Baracks Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Markmið hans var að koma í veg fyrir að Íranar þróuðu kjarnorkuvopn gegn því að slakað yrði á viðskiptaþvingunum.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅