Rifti samningnum við Víking
Bergþóra Sól Ásmundsdóttir er laus undan samningi hjá Víkingi eftir fall kvennaliðsins úr Bestu deildinni, samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Miðjumaðurinn, sem er 23 ára, hafði framlengt samning sinn í sumar til loka tímabilsins 2028. Hún var valin besti leikmaður Víkings bæði árið 2025 og 2026.
Bergþóra er uppalin hjá Breiðabliki og hélt til Örebro í Svíþjóð fyrir þremur árum, þar sem hún lék 20 leiki. Hún gekk til liðs við Víking sumarið 2024 og á að baki 72 leiki fyrir félagið.
Víkingur leikur í næstefstu deild á næsta tímabili. Gylfi Tryggvason hefur tekið við þjálfun liðsins af Einari Guðnasyni.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗