Ætlar þú að kveikja í kortinu á degi einhleypra?
Afslættir eru ansi yfirþyrmandi í dag vegna dags einhleypra og hafa verslanir landsins að öllum líkindum tekið yfir tölvupóstinn þinn og samfélagsmiðla. Þá er ráð að klára þær jólagjafir sem þú ætlar hvort eð er að versla, vetrarföt á krakkana eða eitthvað fyrir sjálfa þig.
Það getur líka færst yfir þig svokallaður afsláttarkvíði, þegar þér líður eins og þú þurfir að versla eitthvað, bara eitthvað og veist ekki alveg hvað, og allt afsláttaráreitið verður of mikið. Þá er mikilvægt að draga andann djúpt og hugsa að það þarf auðvitað ekki að kveikja í kortinu þó að aðrir geri það.
Hvað er dagur einhleypra?
Dagur einhleypra er haldinn „hátíðlegur“ 11. nóvember ár hvert. Dagurinn á uppruna sinn í Kína þar sem háskólanemar við Nanjing-háskóla komu honum á fót árið 1993. Hugmyndin var að fagna lífinu sem einhleypur og sjálfstæður og er einhvers konar mótvægi við Valentínusardaginn. Dagsetningin 11.11 var valin þar sem talan táknar einn einstakling sem stendur einn.
Árið 2009 ákvað kínverski netverslunarrisinn Alibaba að nýta daginn til að hvetja fólk til að gera vel við sig með góðum kaupum. Síðan þá hefur dagur einhleypra þróast í einn stærsta verslunardag heims þar sem verslanir bjóða upp á veglega afslætti og sértilboð.
Ef þú hyggst gera einhvern skaða á bankareikningnum í dag og nýta þér afslætti þá eru hér tíu frábærar hugmyndir.
EGF Serum frá BIOEFFECT
Þetta serum frá íslenska húðvörumerkinu Bioeffect er margverðlaunaðir húðdropar. Þetta er jafnframt vinsælasta varan frá merkinu og hefur öðlast tryggan aðdáendahóp.
15 ML kosta vanalega 15.990 en í dag er kostar varan 12.792 kr.
Marine Super Hydration Mask frá ChitoCare
Djúpnærandi andlitsmaski með íslenskum sjávarinnihaldsefnum, kollageni og hýalúronsýru sem veitir húðinni raka, fyllingu og ljóma. Dásamlegur maski sem verður að vera í baðherbergisskúffunni.
5 maskar kosta 11.990 á venjulegum degi en í dag kosta 5 stykki 8.992 kr.
50% afsláttur af öllum hljóð- og rafbókum frá Forlaginu
Þetta tilboð má enginn láta framhjá sér fara. Forlagið býður upp á 50% afslátt af öllum hljóð- og rafbókum. Við kaup á hljóð- eða rafbók fæst jafnframt aðgangur að Bókahillunni, nýju forriti sem hægt er að lesa og hlusta á bækur hvar og hvenær sem er.
Salka Valka eftir Halldór Laxness í formi hljóðbókar, ásamt fjölda annarra bóka, er á 50% afslætti hjá Forlaginu.
Bolia í Vest
Í hönnunarversluninni Vest er 20% afsláttur af öllu frá Bolia. Þetta er kjörið fyrir þá sem hafa ætlað að endurnýja sófann fyrir jólinn. Dásamlega falleg húsgögn.
Vörur frá Gamla Apótekinu
Þessi handáburður frá Gamla Apótekinu er á 25% afslætti í dag. Það er aldeilis hægt að gera góð kaup á klassískum húð- og snyrtivörum sem þú ert alltaf með í töskunni.
Handáburðurinn kostar 1.599 á fullu verði en 1.199 í dag.
BL+ Lip Renewal Mask frá Blue Lagoon Skin Science
BL+ Lip Renewal Mask er nýr nærandi varamaski sem mýkir, sléttir og gefur vörunum aukinn raka. Maskinn inniheldur bakúsíól, seramíð og lífvirk innihaldsefni sem hjálpa til við að draga úr fínum línum og þurrki.
Maskinn kostar 8.900 en með 22% afslætti kostar hann 6.942 kr.
Skeljakki frá Marmot
Hlífðar- eða skeljakki er gríðarlega praktísk eign og um að gera að gefa slíkan jakka í jólagjöf. Útivistarverslunin Fjallakofinn býður upp á 22% afslátt í dag svo um að gera að nýta sér það.
Þessi jakki kostar á venjulegum degi 34.995 kr. en í dag kostar hann 27.296 kr.
Náttföt frá Polo Ralph Lauren
Náttföt í jólapakkann er alltaf góð hugmynd. Þessi eru einstaklega flott, frá Polo Ralph Lauren og eru dökkblá og hvít, röndótt úr 100& bómull. Í tilefni dagsins er 20% afsláttur af öllu í tískuvöruversluninni Mathildu og þar á meðal eru þessi náttföt.
Þau kosta 26.990 kr. á fullu verði en í dag eru þau á 21.592 kr.
CC Créme frá Erborian
Þetta litaða dagkrem er eitt það vinsælasta í dag og er frá kóreska merkinu Erborian. Kremið dregur úr sýnilegum ójöfnuð í húð og jafnar litatón húðarinnar. Inniheldur breytanleg litarefni sem aðlaga sig að náttúrulegum húðlit og gefur fallegan geislandi ljóma. Hjá Skincarelab er 20% afsláttur af kreminu í dag.
Kremið kostar 7.530 kr. á fullu verði en með afslætti kostar það 6.024 kr.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗








