Þorskurinn sérlega vænn og flottur

Löndun úr Sighvati GK í heimahöfn í Grindavík í dag.

Löndun úr Sighvati GK í heimahöfn í Grindavík í dag. Ljósmynd/SVN/Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa ýmist verið að þorskveiðum fyrir austan land eða lagt áherslu á að fá blandaðan afla suður af landinu.

Jónas Ingi Sigurðsson

Jónas Ingi Sigurðsson

Í umfjöllun á vef Síldarvinnslunnar eru skipin sögð hafa fiskað ágætlega að undanförnu, en Páll Jónsson landaði á Djúpavogi síðastliðinn mánudag og Sighvatur landar í Grindavík í dag. 

Haft er eftir Jónasi Inga Sigurðssyni, skipstjóra á Páli Jónssyni, að túrinn hafði verið ágætur en skipið hafi verið suður af landinu.

„Aflinn í túrnum var 103 tonn og hann var blandaður. Í aflanum var þorskur, langa, ýsa, keila og fleiri tegundir,“ segir Jónas Ingi.

Fjórar lagnir í hvorum túr

Þorskurinn segir hann að hafi verið sérstaklega vænn og flottur, en meðalvigt hans hafi verið á milli 8,5 og 9 kíló.

„Í túrnum voru teknar fjórar lagnir. Fyrst var lagt á Síðugrunni en síðan í Breiðamerkurdýpinu. Veður var þokkalega gott en þó fengum við brælu í síðustu lögninni,” bætir hann við.

Þá er Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, sagður alsæll með túrinn.

Óli Björn Björgvinsson

Óli Björn Björgvinsson


„Að þessu sinni vorum við í þorski fyrir austan. Aflinn var 139 tonn og þarna er um alvörufisk að ræða,“ segir hann á vef SVN.

Lagnirnar í túrnum hafi verið fjórar.

Blandaður afli í næsta túr

„Við byrjuðum við Keikó í Héraðsflóanum en aflinn var ekkert sérstakur í fyrstu lögninni. Þá færðum við okkur suður fyrir Keikó og þar var sannast sagna algjört mok. Í þriðju lögninni fengum við 157 kör sem er með því mesta sem ég hef upplifað.“

Óli Björn segir að fengist hafi fallegasti þorskur sem henti afar vel til vinnslu.

„Sannast sagna gat þetta ekki gengið mikið betur og hér um borð eru menn sælir. Í næsta túr verður væntanlega lögð áhersla á blandaðan afla,“ segir hann.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅