Fjórir kostir sem Arteta horfir til fyrir janúargluggann

Arsenal hefur áhuga á Alex Baena, leikmanni Atletico Madrid, og gæti reynt að fá hann í janúarglugganum.

Samkvæmt The Independent vill Mikel Arteta styrkja sóknarlínu sína og er Baena einn fjögurra leikmanna sem koma til greina. Hinir eru Endrick, Antonio Nusa og Eli Junior Kroupi.

Baena, sem er 25 ára, hefur skorað fimm mörk og lagt upp fjögur á tímabilinu. Hann getur leikið bæði á köntunum og fyrir aftan fremsta mann.

Manchester City hefur einnig fylgst með Spánverjanum, sem er samningsbundinn Atletico til ársins 2030. Talið er að spænska félagið vilji fá um 70 milljónir punda fyrir hann.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅