Bregðast við laxalús með lyfjagjöf
Arctic Fish hefur greint frá því að yfir standi meðhöndlun gegn laxa- og fiskilús í sjókvíum fyrirtækisins í Arnarfirði og Dýrafirði.
Þá segir á vef fyrirtækisins að bregðast þurfi við lús á kvíastæðum Arctic Fish við Kvígindisdal í Patreksfirði og Sandeyri í Ísafjarðardjúpi.
Fram kemur að Fiskisjúkdómanefnd hafi heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun, en hún fari fram með lúsalyfinu SliceVet (Emamectin benzoat).
„Efnið er vel þekkt og er löng reynsla á því í fiskeldi erlendis,“ segir í færslu Arctic Fish.
Um leið er þess getið að Lyfjastofnun geri ekki kröfu um biðtíma fyrir slátrun sé ekki meðhöndlað oftar en einu sinni á seinustu 60 dögum eldistíma, enda sé öruggt að hámarkslyfjaleyfar í vefjum séu undir ásættanlegum gildum fyrir daglega inntöku.
„Ekki eru þekkt neikvæð heilbrigðisáhrif af efninu á lokavöru,“ segir þar jafnframt.
Kvíastæði eru sögð merkt með gulu flaggi meðan á lyfjameðhöndlun stendur í samræmi við ASC-vottun Arctic Sea Farm.
Birtur er áætlaður meðhöndlunartími:
- Trostansfjörður frá 4.11.2026 þar til meðhöndlun er lokið.
- Eyrarhlíð 1 frá 3.11.2026 þar til meðhöndlun er lokið.
- Eyrarhlíð 2 frá 31.10.2026 þar til meðhöndlun er lokið
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗