Kushner: Samið um umfangsmestu fangaskiptin til þessa
Rússar og Úkraínumenn hafa samið um fangaskipti sem verða þau umfangsmestu til þessa, að sögn Jareds Kushners, erindreka Bandaríkjastjórnar. Samkomulagið náðist í tveggja daga viðræðum í Abú Dabí með milligöngu Bandaríkjanna.
Kushner greindi frá þessu í samtali við fréttamenn í dag en sagði að gengið yrði endanlega frá fjölda fanganna á morgun.
„Eitt af því jákvæða er að við höfum samið um umfangsmestu lausn fanga af mannúðarástæðum til þessa,“ sagði hann.
Vladimír Medinskí, erindreki Rússa, og Rustem Umerov, samningamaður Úkraínumanna, staðfestu einnig að samið hefði verið um umfangsmikil fangaskipti. Þeir sögðu fjöldann verða tilkynntan síðar.
Til Moskvu og síðan Dyflinnar
Kushner og Steve Witkoff, sem einnig hefur milligöngu um viðræðurnar fyrir hönd Bandaríkjanna, fara til Moskvu á morgun til fundar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta.
Þaðan halda þeir til Dyflinnar til að gera Volodimír Selenskí Úkraínuforseta grein fyrir viðræðunum.
Stríðandi fylkingar hafa skipst á þúsundum hermanna sem teknir hafa verið til fanga í stríðinu. Það hófst með innrás Rússa í Úkraínu árið 2022 og hefur staðið í tæp fimm ár.
Enginn áþreifanlegur árangur um stríðslok
Viðræður hafa hingað til ekki fært stríðsaðilana nær samkomulagi um að stöðva átökin, sem hafa kostað hundruð þúsunda mannslífa.
Viðræðurnar í Abú Dabí virðast hafa skilað svipaðri niðurstöðu. Fangaskiptin og samkomulag um að halda viðræðum áfram voru einu áþreifanlegu niðurstöðurnar sem aðilar greindu frá í yfirlýsingum til fjölmiðla að þeim loknum.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗