Árshátíð Hafnarfjarðarbæjar endaði fyrir dómstólum

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 12:30

Hafnarfjörður myndin tengist fréttinni ekki beint.

Hafnarfjarðarbær hefur verið sýknaður af kröfu hljóðkerfaleigu vegna deilu um tímasetningu árshátíðar bæjarstarfsmanna árið 2024, en eigandi hljóðkerfaleigunnar taldi bæinn hafa brotið gegn samningi þeirra með því að færa árshátíðina um eina viku. Krafðist hann þess að fá greiddar þrjár milljónir króna sem hann átti að fá fyrir verkið.

Hljóðkerfaleigan hafði samið við Hafnarfjarðarbæ um að annast hljóðkerfi og annan tækjabúnað á ýmsum viðburðum bæjarins, þar á meðal árshátíð bæjarstarfsmanna. Samkvæmt útboðsgögnum var miðað við að árshátíð færi fram fyrsta laugardag marsmánaðar. Samningurinn var gerður árið 2019 til þriggja ára en glöggir lesendur hafa kannski áttað sig á því hvaða óvæntu aðstæður komu upp á samningstímanum – faraldur COVID-19 – sem setti strik í reikninginn hvað skemmtanahald varðaði. Hafnarfjörður hélt enga árshátíð árin 2020 og 2021 vegna samkomubanns.

Eigandi hljóðkerfaleigunnar óskaði í febrúar árið 2022 eftir framlengingu samnings um tvö ár sem bæjarráð samþykkti en þó var ekki gengið frá framlengingu með formlegum hætti. Engu að síður annaðist hljóðkerfaleigan árshátíðina 2023 og virtist fastlega gera ráð fyrir því að taka að sér hátíðina árið 2024 líka.

Árið 2024 gerðist það þó að árshátíðinni, sem átti að fara fram laugardaginn 2. mars, var frestað um viku vegna Söngvakeppni sjónvarpsins. Þetta kom sér illa því hljóðkerfaleigan hafði þegar skuldbundið sig í annað verkefni á nýju dagsetningunni, 9. mars. Gat leigan því ekki tekið að sér tæknimál árshátíðarinnar.

Eigandi leigunnar taldi að Hafnarfjarðarbæ hefði ekki verið heimilt að fresta árshátíðinni einhliða og krafðist greiðslu fyrir verkið þrátt fyrir að hafa ekki haft tök á að vinna það eftir frestunina vegna annarra skuldbindinga. Þessari kröfu hafnaði bærinn og vísaði til samningsákvæðis sem sagði bænum heimilt að hætta við leigu vegna einstakra viðburða með mánaðarfyrirvara.

Héraðsdómur Reykjaness tók undir með hljóðkerfaleigunni að hún hefði mátt gera ráð fyrir því að árshátíð færi fram fyrsta laugardag marsmánaðar að venju og yrði bærinn að bera hallann af því að hafa ekki gengið skriflega frá framlengingu samningsins.

Hins vegar taldi dómurinn að ákvæði samnings um að hætta við leigu vegna einstakra viðburða, að gættum fyrirvara, næði einnig til atvika þar sem viðburður er færður. Eiganda leigunnar var tilkynnt með skriflegum hætti í lok janúar að árshátíðin hefði verið færð til 9. mars. Þar með hafði leigunni verið gefinn mánaðarfyrirvari í samræmi við samninginn. Hafnarfjörður var því sýknaður af kröfum leigunnar sem hafði krafist tæpra þriggja milljón króna. Málskostnaður var felldur niður. Dómurinn var kveðinn upp þann 9. nóvember sl. 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅