Vilja reka Guðnýju úr miðstjórn Sósíalistaflokksins – „Ég mun halda áfram að verja rétt minn og hagsmuni flokksins“
Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 12:30
Guðný Benediktsdóttir. Mynd: Facebook.
Guðný Benediktsdóttir, stjórnarmaður í miðstjórn Sósíalistaflokks Íslands, hafnar ásökunum um að hún hafi neitað að undirrita ársreikning flokksins, en segist hafa verið tilbúin að undirrita hann með fyrirvara um heimild stjórnar til þess, þar sem núverandi stjórn hefur ekki fengið skráningu í fyrirtækjaskrá, ástæðan er ágreiningur um hvort aðalfundurinn sem stjórnin var kjörin á hafi verið lögmætur.
Mbl.is greindi frá því þann 19. október að trúnaðarráð Sósíalistaflokksins hefði mælt með því að Guðný yrði rekin úr miðstjórn flokksins fyrir brot á verklagsreglu um lýðræðislega miðstýringu. Reglan kveður á um að stjórnarmenn skuli ávallt fylgja ákvörðun meirihlutans. Auk þess er Guðný sökuð um trúnaðarbrot með því að deila upplýsingum um málið með lögmanni sínum.
Miðstjórnarfundur um málið var haldinn seinni hluta október en DV hefur ekki upplýsingar um hvað fór fram á þeim fundi. Samkvæmt heimildum DV er þó ekki enn búið að víkja Guðnýju úr miðstjórn flokksins.
Deilur hafa lengi geisað innan Sósíalistaflokks Íslands og hafa haldið áfram eftir klofning flokksins vorið 2025. Núverandi og fyrrverandi flokksfélagar hafa tekist hart á í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum en þessi deila er hins vegar ótengd fyrri félögum og er bundin við núverandi stjórnendur flokksins.
Neitar að fórna lagalegri ábyrgð sinni
Guðný birti í gærkvöld á Facebook-síðu sinni yfirlýsingu sem hún sendi trúnaðarráði Sósíalistaflokksins þann 14. október. Þar vísar hún ásökunum trúnaðarráðsins á bug og segir þær rangar. Hún hafi verið tilbúin að undirrita ársreikninginn, en með fyrirvara. Hún bendir á að sem stjórnarmaður í miðstjórn beri hún lagalega ábyrgð á reikningum flokksins og að krafa um að stjórnarmenn skrifi umhugsunarlaust undir fjárhagsleg skjöl flokksins stríði gegn reglum um ábyrgð stjórnarmanna:
„Í niðurstöðu trúnaðarráðs er því ranglega haldið fram að ég hafi neitað að undirrita ársreikning flokksins og þannig brotið gegn svokallaðri „lýðræðislegri miðstýringu“. Þetta er rangt.
Hið rétta er að ég lýsti mig fullkomlega tilbúna til þess að undirrita ársreikninginn – en með fyrirvara.
Sem kjörinn stjórnarmaður í miðstjórn ber ég persónulega og lagalega ábyrgð á reikningum flokksins gagnvart lögum. Þegar stjórnarmaður telur að endurskoðun eða upplýsingagjöf sé ábótavant, er það ekki aðeins réttur viðkomandi heldur beinlínis skylda samkvæmt lögum að undirrita með fyrirvara eða tryggja að athugasemdir séu bókaðar. Að krefjast þess að stjórnarmenn skrifi blindandi undir fjárhagsleg skjöl án þess að fá svör við efnislegum spurningum, undir því yfirskini að fylgja verði meirihlutanum, stríðir gegn grundvallarreglum um ábyrgð stjórnarmanna.
Trúnaðarráð flokksins hefur hvorki lagalega né siðferðislega heimild til þess að lýsa yfir leynd yfir ákvörðunum sem varða meinta valdníðslu eða brot á lýðræðislegum réttindum stjórnarmanna. Sú tilraun ráðsins að þvinga fram flokksaga og meina mér að leita ráðgjafar lögmanns til að verja rétt minn er með öllu óásættanleg.
Alvarlegri athugasemdir eru væntanlegar.
Mál þetta snýst ekki um að ég vinni gegn vilja meirihlutans. Það snýst um að ég neita að fórna lagalegri ábyrgð minni og skyldum sem stjórnarmaður. Ég mun halda áfram að verja rétt minn og hagsmuni flokksins með aðstoð lögmanns míns.“
Þess má geta að ársreikningur Sósalistaflokksins fyrir árið 2025 hefur verið samþykktur og sendur til Skattsins.
Sömuleiðis í gær birti Guðný á Facebook-síðu sinni fundarboð miðstjórnar frá 5. október en fundur var boðaður 8. okt. Í þeirri færslu segir hún að formaður flokksins, Jón Ferdinand Estherarson, hafi safnað liði gegn sér til að fá hana rekna úr miðstjórn flokksins og hafi staðið í hótunum við sig. Trúnaðarráðið hafi jafnframt mælt með brottrekstri hennar áður en haft var samband við hana vegna málsins. Ennfremur birtir hún fundargerð vegna fundar trúnaðarráðs flokksins þann 12. október. Þar er hún sökuð um „óheilbrigðan samskiptamáta,“ m.a. niðurrif, neikvæðni og tortryggni gagnvart félögum. Guðný segir þetta vera einhvern þann furðulegasta tölvupóst sem henni hafi borist. Í fundargerðinni er hún sökuð um brot á lýðræðislegri miðstýringu (þ.e. að fylgja ekki ákvörðunum meirihlutans), trúnaðarbrot og brot á siðareglum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗