Erfitt að velja hópinn
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir Írlandi á útivelli næstkomandi miðvikudag í fyrsta leik sínum í undankeppni EM. Í kjölfarið bíða liðsins tveir heimaleikir í Ólafssal, gegn Sviss þremur dögum síðar og Aserbaísjan þriðjudaginn 17. nóvember.
Pekka Salminen landsliðsþjálfari ræddi við mbl.is í aðdraganda leikjanna.
„Þetta verður áhugavert. Við vitum ekki mikið um írska liðið. Við þekkjum leikmennina en írska deildin er frekar lágt skrifuð og við höfum ekki aðgang að miklu myndefni úr írsku deildinni,“ sagði hann.
Þjálfarinn segir íslenska liðið þurfa að einbeita sér að eigin leik og nýta verkefnið til að bæta sig.
„Við þurfum að finna leiðir til að bæta okkar eigin leik. Við þurfum að einbeita okkur að framkvæmdinni í sóknarleiknum og vinna í varnarleiknum, meðal annars við að takast á við mismunandi aðstæður og veikleika okkar.“
Meiri samkeppni í hópnum
Þjálfarinn tók við íslenska kvennalandsliðinu í mars 2025 og telur íslenskan körfubolta hafa tekið framförum. Hann segir úrvalið af leikmönnum hafa aukist og samkeppnina um sæti í landsliðinu meiri en áður.
„Það voru margir góðir leikmenn hér áður fyrr en þeim hefur fjölgað enn frekar. Það er orðið erfitt að taka ákvarðanir um hverjar eiga að vera í hópnum. Það er mikil samkeppni og margir góðir leikmenn sem komast ekki í hópinn að þessu sinni.“
Hann segir nokkra leikmenn hafa tekið stór skref fram á við á undanförnum mánuðum og telur það meðal annars endurspegla gott starf hjá bestu félagsliðum landsins. Hann nefnir sérstaklega metnað leikmanna á borð við Helenu Rafnsdóttur, leikmanns Njarðvíkur.
Þjálfarinn ræddi einnig um áskoranir við að fá leikmenn sem stunda nám og spila körfubolta erlendis til að taka þátt í landsliðsverkefnum.
„Við erum svolítið á milli steins og sleggju í þessum málum. Við erum með leikmenn í háskólum í Bandaríkjunum og þurfum að finna leið til að vinna saman. Það er ekki einfalt að fá leikmenn til landsliðsins þegar tímabilið er í fullum gangi hjá félagsliðum þeirra.“
Aðspurður um leikstíl íslenska liðsins sagði hann:
„Við viljum hafa mikla hreyfingu í okkar leik en meginmarkmiðið er að skapa rými til að sækja á körfuna.
Það þýðir að við þurfum að ná hreyfingunum og leikskipulaginu vel, svo við stöndum ekki í vegi hver fyrir annarri. Tímasetningin þarf að vera rétt og við þurfum að vera góð í þeim atriðum,“ sagði Finninn.
Hæðin ekki sami veikleiki og áður
Hæð leikmanna hefur lengi verið veikleiki íslenska liðsins en þjálfarinn segir unnið að því að styrkja þann þátt.
Darina Andriivna Khomenska sem er 1,92 m á hæð er í hópnum í fyrsta skipti og fær tækifærið. Salminen nefndi einnig Heiði Karlsdóttur, sem leikur með Colorado State í Bandaríkjunum sem er 193 sentimetrar á hæð en er ekki í hópnum að þessu sinni.
Hann segir íslenska liðið þó hafa staðið sig vel við að verja teiginn og nefnir Ísabellu Ósk Sigurðardóttur sérstaklega í því samhengi.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗