Hraðlestin kveður Hverfisgötu eftir 23 ár
„Eftir 23 farsæl ár er kominn tími til að kveðja Hverfisgötuna, fæðingarstað Hraðlestarinnar,“ segir Chandrika Gunnarsson, eigandi og framkvæmdastjóri Hraðlestarinnar. mbl.is/Eggert
Hraðlestin kveður húsnæði sitt við Hverfisgötu 64a eftir 23 ára samfelldan rekstur. Frá 16. nóvember verður starfsemin í miðbæ og Vesturbæ sameinuð á Granda, þar sem starfsfólkið á Hverfisgötu gengur til liðs við teymið.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Eftir breytinguna verða veitingastaðir Hraðlestarinnar þrír: á Granda, við Grensásveg og í Hlíðasmára í Kópavogi.
Kveðja fæðingarstað Hraðlestarinnar
Hraðlestin hóf göngu sína á Hverfisgötu árið 2003 sem staður fyrir sóttan mat frá Austur-Indíafjelaginu en hefur síðan skapað sér eigið orðspor. Staðurinn á Granda var opnaður árið 2023.
„Eftir 23 farsæl ár er kominn tími til að kveðja Hverfisgötuna, fæðingarstað Hraðlestarinnar. Þetta gamla hús sem við breyttum saman í veitingastað mun ávallt eiga sérstakan stað í hjörtum Hraðlestarfjölskyldunnar,“ segir Chandrika Gunnarsson, eigandi og framkvæmdastjóri Hraðlestarinnar, í tilkynningunni.
Hún segir gildi og markmið fyrirtækisins óbreytt en reksturinn krefjist annars nú en þegar lagt var af stað.
„Við förum þó ekki langt, enda eigum við góða og trygga gesti í miðbæ og Vesturbæ sem við munum halda áfram að þjóna frá Grandanum. Þar er aðgengi betra, bæði fyrir þá sem kjósa að sækja mat og þá sem vilja borða á staðnum.“
Fjölskyldan heldur rekstrinum áfram
Chandrika stofnaði Hraðlestina ásamt eiginmanni sínum, Gunnari Gunnarssyni, og samstarfsfélaga þeirra, Miroslav „Bato“ Manojlovic. Báðir hafa síðan fallið frá en Chandrika rekur fyrirtækið áfram með aðstoð fjölskyldu sinnar.
Hún segir starfsfólkið, sem margt eigi langan starfsferil hjá fyrirtækinu, vera bakland þess og forsendu árangursins.
Auk veitingastaðanna er Hraðlestin með eigin matvörulínu sem fæst í verslunum víða um land.
„Hverfisgata 64a reyndist okkur fullkominn stökkpallur og við hlökkum til að sjá hvað framtíðin þar ber í skauti sér. Við kveðjum Hverfisgötuna um sinn en Hraðlestin heldur áfram á fullri ferð,“ segir Chandrika.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
