Rjúpnaveiðin gengið upp og ofan
Rjúpnaveiðar hafa gengið misjafnlega það sem af er veiðitímanum og hefur þar tíðarfar ráðið mestu. Þannig hefur veiðin á Suður- og Vesturlandi gengið upp og ofan en betur hefur veiðst á Norðaustur- og Austurlandi.
Nú hillir undir lok rjúpnaveiðitímans á Suður- og Norðvesturlandi en þar lýkur veiðum 17. nóvember nk. og eru fimm veiðidagar eftir á þeim svæðum, frá föstudegi til þriðjudags, að báðum dögum meðtöldum.
„Veiðin hefur gengið upp og ofan. Það hafa verið skrýtnar aðstæður megnið af veiðitímanum, rigning og auð jörð víða og rjúpan haldið sig hæst í fjöllum. Þegar jörð er auð getur hún líka verið mjög dreifð,“ segir Áki Ármann Jónsson formaður SKOTVÍS í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að menn hafi náð góðri veiði þegar upp í snjólínu hafi verið komið, en veiðin hjá flestum hafi verið kropp.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗