Krafðist 157.000 en þarf að greiða 835.000

Daginn sem dvölin átti að hefjast rann hraun yfir stofnlögn HS Veitna og varð heitavatnslaust á Suðurnesjum, meðal annars í Vogum. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Kona búsett í Þýskalandi þarf að greiða rekstraraðila gististaðar í Vogum tæplega 835 þúsund krónur í málskostnað eftir að hafa tapað máli um endurgreiðslu gistingar.

Hún krafðist rúmlega 157 þúsund króna vegna dvalar sem fjölskylda hennar gat að hennar sögn ekki nýtt vegna heitavatnsleysis eftir hraunrennsli.

Héraðsdómur Reykjaness sýknaði Arktik Rok ehf., sem rekur gististaðinn Arctic Wind, af kröfum konunnar með dómi 9. nóvember.

Hraun rann yfir stofnlögn

Konan hafði keypt flug og gistingu fyrir fjölskyldu sína hjá þýskri ferðaskrifstofu. Innifalin var gisting í tveimur herbergjum í fimm nætur, frá 8. til 13. febrúar 2024. Ferðaskrifstofan bókaði herbergin í gegnum Expedia.

Daginn sem dvölin átti að hefjast rann hraun yfir stofnlögn HS Veitna og varð heitavatnslaust á Suðurnesjum, meðal annars í Vogum.

Rekstraraðilinn sendi konunni skilaboð í gegnum ferðaskrifstofuna um ástandið og að viðgerð tæki nokkra daga. Henni var ráðlagt að afbóka og boðið að skipta afbókunarkostnaði til helminga.

Konan sagði að fjölskyldunni hefði verið neitað um herbergin við komuna þar sem húsið væri óupphitað. Hún hélt því jafnframt fram að henni hefði verið lofað endurgreiðslu.

Félagið hafnaði því að fullri endurgreiðslu hefði verið lofað. Það sagði konuna ekki hafa afbókað þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir og vísaði til þess að bókunarskilmálar veittu henni ekki rétt til endurgreiðslu.

Aflaði hitatækja daginn eftir

Dómurinn taldi hraunrennslið og heitavatnsleysið ófyrirsjáanleg og óviðráðanleg atvik, svonefnt force majeure.

Í niðurstöðunni kemur fram að rekstraraðilinn hafi reynt að ná sambandi við konuna daginn eftir fyrirhugaða komu, þegar búið var að koma fyrir rafmagnsofnum og hitablásurum. Hún hafi hins vegar ekki svarað.

Dómurinn benti á að við riftun samnings ætti aðili kröfu um endurgreiðslu. Konan hefði þó ekki rift þrátt fyrir hvatningu rekstraraðilans og ástæður þess lægju ekki fyrir.

Þá hefði málið verið höfðað til innheimtu skuldar en ekki til greiðslu skaðabóta. Ósannað væri jafnframt að félagið hefði lofað konunni fullri endurgreiðslu.

Talin hafa sýnt tómlæti

Konan hafði ítrekað krafist endurgreiðslu, bæði sjálf og með aðstoð lögmanna. Dómurinn féllst engu að síður á að hún hefði sýnt tómlæti með því að fylgja kröfunni ekki eftir með málshöfðun fyrr en 4. apríl 2026, rúmum tveimur árum eftir atvikin.

Enn fremur taldi dómurinn ekki annað séð en að hún hefði keypt pakkaferð hjá þýsku ferðaskrifstofunni. Ekki hefði verið beint samningssamband milli hennar og rekstraraðila gististaðarins.

Með vísan til þessara atriða var félagið sýknað. Konunni var gert að greiða því 834.675 krónur í málskostnað.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅