Kennir tveimur leikmönnum United um

Sanne Lammens.

Sanne Lammens. AFP/Darren Staples

Teddy Sheringham, fyrrverandi leikmaður enska landsliðsins og Manchester United, telur að United eigi að skipta knattspyrnustjóranum Michael Carrick út því liðið haldi áfram að endurtaka sömu mistökin.

United er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 4:4-jafntefli við Aston Villa á sunnudag.

Fyrrverandi framherjinn gagnrýndi markvörðinn Senne Lammens fyrir að virðast taugaóstyrkur og gera ítrekuð mistök er hann ræddi við Boyle Sports.

Hann hélt því einnig fram að vegna meiðsla Benjamins Šeško væri United án hreinræktaðs miðframherja til að halda boltanum og létta pressunni af vörninni.

„Ef Šeško væri ekki svona mikið meiddur væri United hvergi nærri fallsvæðinu núna, jafnvel þótt hann hefði ekki skorað eitt einasta mark.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅