Landsliðið gat ekki lent vegna viðskiptaþvingana Bandaríkjanna
Íranska karlalandsliðinu í knattspyrnu var í gær bannað að lenda í Írak vegna viðskiptaþvingana Bandaríkjanna gegn Íran.
Samkvæmt Reuters var landsliðið á leið til borgarinnar Basra þar sem það á að taka þátt í fjögurra þjóða móti ásamt Írak, Líbanon og Palestínu.
Írösk flugmálayfirvöld neituðu hins vegar að veita flugvélinni lendingarleyfi. Vélin þurfti því að snúa aftur til Írans og lenti í borginni Abadan, þaðan sem landsliðið hélt áfram ferð sinni til Basra landleiðina.
Ástæðan er viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gegn írönskum flugfélögum. Íraskur embættismaður segir yfirvöld ekki hafa viljað hætta á að brjóta gegn þeim.
Bandaríkin hafa hótað refsiaðgerðum gegn flugvöllum og fyrirtækjum sem þjónusta írönsk flugfélög. Írak hafði þegar stöðvað flug íranskra flugfélaga til Bagdad í september af sömu ástæðu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗