Guðjón Ragnar Jónasson skrifar: Litlu skólarnir eru lykillinn

Segja má að fjarnám á Íslandi megi rekja til bréfaskóla á fyrri hluta 20. aldar. Námsefni, verkefni og leiðbeiningar voru send fram og til baka með pósti og oftar en ekki fólst námið í tungumálakennslu og bókmenntum. Bréfaskóli SÍS er kannski þekktasta dæmið um slíkt samstarf um bréfakennslu, sem nýttist einkum fólki á landsbyggðinni. Skólinn var stofnaður árið 1940 en árið 1965 tók Alþýðusamband Íslands (ASÍ) upp samstarf við SÍS og fékk hann þá nafnið Bréfaskóli SÍS og ASÍ. Skólinn varð síðar hluti af Menningar- og fræðslusambandi alþýðu.

Eftir 1980 fór bréfaskólum fækkandi og fólk sótti meira í nám í öldungadeildum. Framhaldsskólar voru þó ekki alls staðar á landinu. Níundi áratugurinn var blómatími öldungadeildanna en vandinn var sá að aðgengi að þeim var misskipt milli landshluta; dreifðari byggðir höfðu auðvitað ekki sama aðgengi og þéttbýlið. Um miðbik tíunda áratugarins fóru framhaldsskólar að fikra sig áfram með tilkomu tölvualdarinnar og almennra framfara í skólakerfinu.

Fyrstu tilraunir með fjarnám í framhaldsskólum hófust á níunda og tíunda áratugnum, m.a. við Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA) sem og við Kennaraháskóla Íslands. Sá síðarnefndi lagði áherslu á að fjölga menntuðum kennurum og svara þannig ákalli eftir menntun sem nýst gæti úti í hinni dreifðu byggð. Næstu árin fór boltinn að rúlla og sterk deigla myndaðist þar sem margir sérhæfðu sig í fjarkennslu.  

Ég starfa við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) en skólinn var stofnaður árið 1987. Fjarnám við skólann hefur verið í boði frá árinu 1998, fyrst sem tilraunaverkefni, en það óx mjög hratt á næstu árum og var þá unnið í samstarfi við aðra framhaldsskóla á Austurlandi. Skólinn hefur síðan þróað sitt eigið fjarkennsluumhverfi með hjálp nýrrar tækni og fjölbreyttra lausna. Fjarnemendur eru enn í dag mikilvægur og stór hluti af nemendahópnum, sem tryggir jafnt aðgengi að námi óháð búsetu og styrkir byggðina í héraðinu.

Skólinn er í virku samstarfi við aðra framhaldsskóla, en samstarf þeirra er kallað Samland. Það gerir fjar- og staðnemendum kleift að taka áfanga í fjarnámi milli skóla ef tiltekin námsgrein er ekki í boði í heimaskólanum. Samland er samstarfshópur 12 framhaldsskóla á landsbyggðinni sem vinnur saman að því að efla og samnýta fjar- og dreifnám. Með þessu samstarfi geta skólarnir boðið nemendum sínum upp á miklu fjölbreyttara námsframboð en hver skóli getur einn og sér, sérstaklega þegar kemur að iðn-, verk- og starfsnámi.

Mikilvægt er að skólarnir fái tækifæri á næstu árum til að efla fjarnám sitt enn frekar. Fjarnámið varð að stórum hluta til úti í hinni dreifðu byggð; án þess gætu skólarnir einfaldlega ekki boðið upp á jafn ríkulegt námsframboð og raun ber vitni.

Mikið hefur verið talað á undanförnum árum um að færa opinber störf út á land. Það hefur gengið misjafnlega og oftar en ekki spyr fólk hvort störfunum fylgi búsetuskylda. Þó ber að hafa í huga að búferlaflutningar eru ekki einfaldir. Ég vil því í lokin árétta mikilvægi þess að skólarnir úti á landi fái tækifæri til að efla fjarnám sitt og vera leiðandi í fjarkennslu, sem að stórum hluta myndaðist einmitt til að styrkja samfélög í dreifbýli. Við vitum að öflugir skólar skipta sköpum og slík menntunarnálgun er sú byggðastefna sem hefur virkað hvað best. Það eru gríðarleg tækifæri fólgin í eflingu fjarnáms úti á landi. Uppbygging og stuðningur við skólana á landsbyggðinni er ódýr og sannreynd leið þegar kemur að árangursríkri byggðastefnu.

Sem dæmi um nýjungar má nefna að Háskóli Íslands ætlar að bjóða upp á örnám á landsbyggðinni í tengslum við fræðasetur sín, sem og í öflugu samstarfi við atvinnulíf á hverju svæði. Við megum ekki gefast upp á að eiga öfluga landsbyggð. Það er öllum landsmönnum mikilvægt að menningarlegt auðmagn sé ríkulegt, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á hinum dreifðari svæðum. Fræðin segja okkur að menntun og menning skipti höfuðmáli í þeim efnum.

Því skulum við slá skjaldborg um framhaldsskólana á landsbyggðinni. Við vitum að menntun og menning er sú leið sem virkar til að efla dreifðar byggðir þessa lands. Slíkt verður ekki gert með Inndjúpisáætlunum eða loðdýrarækt. Munum að mennt er máttur. Að mínu viti eru það litlu skólarnir á landsbyggðinni sem eru best til þess fallnir að kveikja þann eld sem til þarf.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅