Taldi sig færða í lægra sett starf en tapaði málinu

Dómurinn taldi flutninginn rúmast innan stjórnunarheimilda ríkisendurskoðanda og hafnaði því að ákvörðunin hefði verið ólögmæt. Ljósmynd/Colourbox

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Ríkisendurskoðun af kröfum sviðsstjóra sem höfðaði mál vegna ákvörðunar um að færa hana til í starfi.

Dómurinn taldi flutninginn rúmast innan stjórnunarheimilda ríkisendurskoðanda og hafnaði því að ákvörðunin hefði verið ólögmæt.

Sviðstjórinn, sem er kona, hafði krafist þess að ákvörðunin yrði felld úr gildi eða að viðurkennt yrði að hún hefði verið ólögmæt. Báðum kröfum var hafnað í dóminum, sem féll í gær. Málskostnaður var felldur niður.

Taldi gagnrýni sína liggja að baki

Konan hefur starfað hjá Ríkisendurskoðun frá árinu 2019 og gegndi starfi sviðsstjóra stjórnsýslu- og lögfræðisviðs. Með bréfi 28. júlí 2025 var henni tilkynnt að hún skyldi taka við starfi sviðsstjóra nýs stoðsviðs frá 1. október sama ár.

Vísað var til skipulagsbreytinga og tekið fram að laun hennar og önnur starfskjör yrðu óbreytt.

Konan taldi flutninginn hins vegar fela í sér að hún væri færð í óskylt og lægra sett starf. Hún myndi stýra færri starfsmönnum og menntun hennar og reynsla nýttust ekki með sama hætti og áður. Annar starfsmaður hefði jafnframt verið ráðinn tímabundið í fyrra starf hennar.

Hún taldi ákvörðunina tengjast gagnrýni sinni á stjórnun embættisins og því að hún hefði farið á fund forseta Alþingis í apríl 2025 til að ræða starfsmannamál þess.

Ríkisendurskoðun hafnaði þeim skýringum og sagði flutninginn byggðan á faglegum og rekstrarlegum sjónarmiðum.

Hætt við að auglýsa nýja starfið

Skipulagsbreytingarnar höfðu verið kynntar stjórnendum í ársbyrjun 2025. Þær fólu meðal annars í sér sameiningu sviða og fækkun sviðsstjóra.

Upphaflega stóð til að auglýsa starf sviðsstjóra hins nýja stoðsviðs. Ríkisendurskoðandi ákvað hins vegar að færa konuna í starfið.

Fyrir dómi skýrði hann ákvörðunina meðal annars með óvissu um endurkomu hennar og fleiri starfsmanna úr leyfi. Hann taldi jafnframt að reynsla hennar og þekking á innviðum embættisins myndu nýtast vel við stjórn nýja sviðsins.

Konan hafði verið í leyfi frá maí 2025 og hafði ekki sinnt starfi sviðsstjóra stoðsviðs þegar málið var rekið.

Færri undirmenn réðu ekki úrslitum

Dómurinn tók fram að heimilt væri að breyta störfum og verksviði ríkisstarfsmanna. Slíkar breytingar yrðu þó að byggjast á málefnalegum sjónarmiðum og ekki vera meira íþyngjandi en nauðsyn bæri til. Ríkisendurskoðun bæri sönnunarbyrðina fyrir því að málefnaleg sjónarmið hefðu legið ákvörðuninni til grundvallar.

Að mati dómsins varð ekki annað ráðið af framburði ríkisendurskoðanda en að ákvörðunin hefði verið tekin til að tryggja skilvirka starfsemi embættisins og að markmiðum þess yrði náð.

Ekki var talið ómálefnalegt að fela konunni stjórn stoðsviðsins þótt þar væru færri starfsmenn en á fyrra sviði hennar. Áfram væri um stjórnunarstarf að ræða og ekki yrði séð að stjórnunarheimildir hennar hefðu minnkað.

Þá réð það ekki úrslitum þótt ekki lægju fyrir skrifleg gögn um mat ríkisendurskoðanda að baki ákvörðuninni.

Samráð hefði verið ákjósanlegt

Engin samskipti höfðu verið milli konunnar og ríkisendurskoðanda frá því hún fór í leyfi í maí þar til henni var tilkynnt um flutninginn í júlí.

Dómurinn taldi aðstæður um margt óvenjulegar og möguleika til samtals og samráðs hafa verið takmarkaða. Þó hefði verið ákjósanlegt að reyna að koma á samskiptum áður en ákvörðunin var tilkynnt.

Það breytti ekki niðurstöðu dómsins um að ekki hefði verið brotið gegn óskráðum reglum stjórnsýsluréttar um andmælarétt.

Þar sem laun og önnur starfskjör áttu að haldast óbreytt og flutningurinn var ekki talinn jafngilda því að staða konunnar væri lögð niður, féllst dómurinn ekki á að um íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun hefði verið að ræða. Ákvörðunin var heldur ekki talin brjóta gegn lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eða óskráðum reglum stjórnsýsluréttar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅